Lögregluyfirvöld í London hafa bannað fyrirhugaða göngu flokksins UKIP í austurhluta borgarinnar af ótta við að hún geti valdið alvarlegum óeirðum.
Gangan, sem bar yfirskriftina „Walk With Jesus“, átti að fara fram 31. janúar í Whitechapel, svæði þar sem stór hluti íbúa eru múslimar.
Samkvæmt Metropolitan lögreglunni væri óábyrgt að heimila slíkan viðburð á þessum stað, þar sem hætta væri á fjandsamlegum viðbrögðum og ofbeldi.
Í yfirlýsingu lögreglu kemur fram að áhættumat hafi sýnt fram á raunverulega hættu fyrir almenning og lögreglumenn ef gangan færi fram eins og áætlað var.
Kristileg ganga
Göngunni var lýst á samfélagsmiðlum sem kristilegum viðburði þar sem þátttakendum var boðið að sameinast í tilbeiðslu á Jesú Kristi.
Skipuleggjendur sögðu janúar vera helgaðan Jesú og að gangan væri liður í því.
Lögreglan hefur þó tekið fram að gangan sé ekki alfarið bönnuð, heldur aðeins á tilteknum stað.
UKIP hafi verið boðið að finna aðra leið eða annan stað fyrir viðburðinn, að því gefnu að samkomulag náist um öryggismál.
Óttast að samfélag múslima bregðist illa við
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem viðburður á vegum UKIP er bannaður eða færður úr Tower Hamlets hverfinu.
Í október síðastliðnum var fyrirhuguð mótmælaganga flokksins stöðvuð vegna svipaðra áhyggja af óeirðum.
Í kjölfarið safnaðist saman fjöldi manna þrátt fyrir bann lögreglu, margir með grímur, og þrátt fyrir mikla spennu kom ekki til óeirða.
Forystumenn UKIP hafa gagnrýnt ákvörðunina harðlega og sakað lögreglu um að gefa eftir fyrir þrýstingi og brjóta gegn lýðræðislegum rétti til að safnast saman.
Einnig er haft eftir þeim að engin fordæmi séu fyrir því að samkomur múslima hafi verið bannaðar af sömu ástæðum.
Lögreglan hafnar þeirri túlkun og segir ákvörðunina eingöngu byggða á öryggissjónarmiðum, ekki pólitík eða því hvort einhverjum kunni að mislíka boðskapurinn.
Aðstoðarlögreglustjóri sagði að takmörkuð samskipti hefðu náðst við skipuleggjendur undanfarnar vikur og hvatti þá til að vinna með lögreglu að því að finna nýjan vettvang.
Jafnframt var varað við því að þeir sem brytu gegn banninu og mættu í gönguna í Whitechapel gætu átt yfir höfði sér handtöku.