Maður handtekinn vegna dauða norsku stúlkunnar á Spáni – Fór inn í Uber með tveimur mönnum stuttu fyrir dauða sinn

Spænska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa ekið á norsku stúlkuna Nikoline Piwoni Hoie, 17 ára, sem lést eftir áreksturinn á Costa del Sol aðfaranótt 6. júlí.

Rúm vika er liðin síðan slysið varð og yfirvöld hafa birt nýjar upplýsingar um síðustu klukkustundir stúlkunnar.

Sautján ára norsk stúlka fannst látin á Spáni – Var að fagna sigri Norðmanna með vinum sínum

Auglýsing

Fór upp í Uber með tveimur ungum mönnum

Samkvæmt rannsókn Guardia Civil var Nikoline að skemmta sér á næturklúbbnum Funky Buddha í Puerto Banús ásamt vinum þegar hún hvarf.

Rannsóknin bendir til þess að hún hafi farið upp í Uber bifreið ásamt tveimur ungum mönnum um klukkan fjögur um nóttina. Ekki hefur verið upplýst hvort hún þekkti mennina eða hvers vegna þau voru saman í bifreiðinni.

Lögreglan segir að Nikoline hafi síðan beðið ökumanninn um að hleypa sér út við Riviera del Sol afreinina á A-7 hraðbrautinni, um tuttugu mínútum eftir að ferðin hófst.

Talið að hún hafi ætlað yfir hraðbrautina

Rannsóknarmenn telja að Nikoline hafi í kjölfarið reynt að komast yfir á gagnstæða hlið hraðbrautarinnar þar sem leigubílastæði er staðsett.

Svo virðist sem hún hafi reynt að fara yfir hraðbrautina í stað þess að nota undirgöng fyrir gangandi vegfarendur.

Um klukkan 5:20 varð hún fyrir vörubíl og lést af áverkum sínum á vettvangi.

Annar vörubílstjóri sem varð vitni að slysinu stöðvaði þegar í stað og kallaði á neyðarþjónustu.

Myndavélar leiddu lögregluna á sporið

Guardia Civil segist hafa rakið ferðir grunaðrar bifreiðar með upptökum úr eftirlitsmyndavélum á A-7 milli Riviera del Sol og Fuengirola.

Í framhaldinu fannst sendibifreið með skemmdum á framhluta og brotna framrúðu sem rannsakendur telja passa við slíkan árekstur.

Ökumaður bifreiðarinnar var handtekinn á mánudag og verður yfirheyrður vegna málsins.

Rannsaka hvort ökumaðurinn hafi flúið af vettvangi

Lögreglan á enn eftir að skera úr um hvort dauða Nikoline hafi borið að með saknæmum hætti.

Ef rannsókn leiðir í ljós að hann hafi ekið löglega og ekki getað komist hjá árekstrinum gæti hann sloppið við ákæru fyrir að hafa ekið á hana.

Rannsóknin beinist hins vegar einnig að því hvort hann hafi yfirgefið vettvang banaslyss og vanrækt að veita slasaðri manneskju aðstoð.

Á sama tíma er unnið að því að upplýsa hvers vegna Nikoline fór út úr Uber bifreiðinni áður en hún kom á áfangastað. Einnig stendur til að yfirheyra mennina tvo sem voru með henni í bifreiðinni, auk þess sem Uber hefur staðfest að fyrirtækið vinni með spænskum yfirvöldum við rannsókn málsins.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing