Þrjátíu og sex ára gamall maður af marokkóskum uppruna hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á Spáni, grunaður um að hafa veitt ólögráða ungmenni 18 hnífsáverka eftir að honum var neitað um kveikjara.
Áverkarnir voru meðal annars á andliti, hálsi, höfði, brjóstkassa og baki drengsins. Lögreglan rannsakar árásina sem tilraun til manndráps.
Elti hann með hníf
Árásin átti sér stað í borginni Zaragoza að kvöldi 5. september. Samkvæmt rannsókn spænsku ríkislögreglunnar var drengurinn einn á ferð þegar maðurinn gekk að honum og bað um kveikjara.
Þegar beiðninni var hafnað er maðurinn sagður hafa byrjað að hreyta ónotum í fórnarlambið áður en hann dró upp hníf.
Drengurinn reyndi að komast undan en maðurinn veitti eftirför, náði honum og stakk ítrekað með hnífnum. Maðurinn flúði síðan af vettvangi.
Áverkar víða um líkamann
Drengurinn komst á Miguel Servet háskólasjúkrahúsið þar sem gert var að sárum hans.
Í læknaskýrslu voru skráðir alls 18 áverkar, á andliti, hálsi, hársverði, hnakka, brjóstkassa, baki og hægri handlegg.
Rannsóknarlögreglumenn báru kennsl á hinn grunaða og handtóku hann 10. september. Að sögn lögreglu hefur hann oftar en tíu sinnum áður komið við sögu hennar vegna sambærilegra mála.
Dómari úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald daginn eftir handtökuna. Hann er grunaður um tilraun til manndráps.