Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir morðhótun gegn blaðamanni Heimildarinnar.
Kæran var lögð fram á fimmtudagsmorgun, eftir að Íris hótaði að koma heim til blaðamannsins og drepa hann, leiðrétti hann ekki rangfærslu um að hún hefði undirritað nálgunarbann, svokallaða Selfoss-leið.
Þetta kom fram í samtali við Írisi síðasta föstudag samkvæmt Heimildinni.
Sama dag birti Heimildin leiðréttingu á vef sínum þar sem tekið var fram að ranglega hefði verið sagt að hún hefði undirgengist nálgunarbann með undirritun.
Birti mynd af fjölskyldu hans og gaf í skyn að hún hygðist sækja um starf í skóla sona hans
Íris birti einnig mynd af blaðamanninum og fjölskyldu hans á samfélagsmiðlareikningi sínum.
Þá ýjaði hún að því í tölvupósti að hún gæti hugsað sér að sækja um starf sem kennari í sama skóla og synir blaðamanns stunda nám.
Sagði hún það vera til þess að blaðamaðurinn gæti séð að hún væri „venjuleg manneskja sem er bara að reyna að komast í gegnum daginn.“
Áður verið kærð til lögreglu
Íris hefur áður verið sökuð um eltihrelli og áreitni eins og Nútíminn hefur áður fjallað um.
Garpur Elísabetarson dagskrárgerðarmaður var fyrstur til að stíga fram opinberlega og greina frá slíkri hegðun af hennar hálfu.
Í kjölfarið steig fyrrverandi kærasti Írisar, Sölvi Guðmundarson, fram og lýsti sambærilegri reynslu úr um það bil eins árs sambandi þeirra.