Meiri peningar eru ekki lausnin – Segir ódýran skóla þegar hafa sýnt hvað virkar

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segir lausnina á vanda íslenska skólakerfisins ekki endilega felast í auknum útgjöldum. Frekar þurfi að breyta forgangsröðun, kennsluaðferðum og þeirri sýn sem skólastarfið byggist á.

Hann leggur til tíu aðgerðir sem hann segir flestar eiga sterka stoð í rannsóknum. Þar á meðal eru kerfisbundin lestrarkennsla, reglulegar mælingar á framförum barna, endurkoma hefðbundinna bóka og aukin áhersla á aga og grunnfærni.

Auglýsing

Tillögurnar koma í kjölfar nýrra PISA niðurstaðna sem sýna að íslenskir nemendur eru undir meðaltali OECD ríkjanna í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði.

Segir einn skóla geta vísað veginn

Jón Pétur segir íslenska grunnskóla með stóra og fjölbreytta nemendahópa hafa náð að bæta PISA árangur sinn milli mælinga.

Árangur eins þeirra sé slíkur að ef allir íslenskir skólar næðu sambærilegum niðurstöðum væri Ísland við topp OECD ríkjanna. Hann nafngreinir skólann þó ekki í grein sinni.

Jón Pétur segir jafnframt að skólinn sé meðal ódýrustu grunnskóla landsins á hvern nemanda. Það sýni að hans mati að aukin útgjöld séu ekki forsenda betri námsárangurs.

Vill skjátíma við frostmark

Fyrsta tillaga Jóns Péturs snýr að fyrstu æviárunum. Foreldrar eigi að lesa og tala mikið við börn fyrstu tvö til þrjú árin og gagnvirkum skjátíma eigi að halda við frostmark.

Þá þurfi börn í leikskólum að alast upp við ríkulegt og gott íslenskt málumhverfi.

Hann vill einnig endurskoða kennaranám frá grunni með aukinni áherslu á grunnfærni, árangur og lengd námsins. Aðalnámskrá grunnskóla þurfi sömuleiðis að verða skýrari og byggja meira á þekkingu og grunnfærni.

Bækur aftur inn í skólana

Jón Pétur vill að kerfisbundin hljóðaaðferð verði grunnur lestrarkennslu ásamt markvissri þjálfun í orðaforða, lesfimi og lesskilningi.

Framvindu lestrarnáms eigi að mæla reglulega í fyrsta til þriðja bekk og grípa strax inn í þegar barn dregst aftur úr. Þá leggur hann áherslu á beina, skýra og kerfisbundna kennslu.

Hann vill einnig samræmd könnunarpróf í fjórða, sjöunda og níunda bekk og samræmt lokapróf í tíunda bekk sem taki til allra viðmiða aðalnámskrár.

Notkun far- og spjaldtölva í skólum verði tekin til gagngerrar endurskoðunar og hefðbundnar bækur færðar aftur inn í skólastofurnar. Að lokum vill hann efla tengsl, aga, félagsfærni og jákvæðan skólabrag.

„Við þurfum ekki alltaf meiri peninga til að bæta skólann. Við þurfum að gera meira af því sem við vitum að virkar,“ skrifar Jón Pétur.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing