„Mikið væri nú líf manns auðvelt ef maður væri samkynhneigður“ – Erpur ræðir um allt milli himins og jarðar

Í nýjasta þætti Fullorðins kemur Erpur Eyvindarson, einn þekktasti rappari Íslands, til Kiddu og fer með áhorfendur í ferðalag í gegnum pælingar sínar um ást, kynlíf, karlmennsku og lífið sjálft.

Með sinni einstöku hreinskilni og húmor segir hann hlutina eins og hann sér þá og hikar ekki við að velta upp hugmyndum sem margir hafa eflaust hugsað en færri sagt upphátt.

„Mér finnst karlmenn bara ekki sexí“

Auglýsing

Erpur byrjar á því að lýsa hvernig hann sér kærustuna sína sem vin, alveg eins og bestu vinir hans sem eru strákar, nema eini munurinn sé sá að hann hefur ekki löngun til að stunda kynlíf með þeim.

„Mér finnst karlmenn bara ekki sexí,“ segir hann blákalt og heldur áfram: „En vá hvað lífið væri auðvelt ef maður gæti farið og böðlað einn böddí!“.“

Hann bætir við að ef hann væri samkynhneigður, þá væri margt miklu einfaldara: „Tekið á félögunum, þá væri margt helvíti einfaldara.“

„Stelpur eru alveg jafn graðar og strákar“

Í samtalinu segir Erpur að stelpur séu alveg jafn graðar og strákar, en á annan hátt.

Samkvæmt honum virðast strákar eiga auðveldara með að skilja á milli kynlífs og ástar:

„Vinir manns sem eru í hommeríi, þeir fara eitthvað til Berlín og týna hvor öðrum Það er ekkert stress. Það er bara að búið sé að tala um allt.“

Hann segir að það sé meðal annars þessi opni samtalsstíll sem geri samskipti innan hinsegin sambanda oft einfaldari að hans mati.

„Við nennum þessu ekki“ – um drama og tilfinningasprengjur

Kidda grípur þá inn í og veltir fyrir sér hvort það væri ekki einfaldara að búa með konu heldur en kalli.

En viðurkennir strax: „Við værum alltaf báðar á túr.“

Erpur tekur undir og rifjar upp samtal við vinkonu sína sem er samkynhneigð.
„Ég sagði bara: Djöfull er það æðislegt, bara einhver brjóst og einhver sköp og ekkert einhver „tettlingur“ og einhver punghár og einhver viðbjóður.“

En vinkona hans sagði lesbískt samband ekki vera neinn draumastað: „Hún sagði bara: Nei, það er ekkert auðveldara, sko.“

Erpur útskýrir að hún hafi lýst miklu meira drama í sínum samböndum.
„Þegar hún og kærastan hennar fara af stað, þá er þetta bara: dang, dang, dang, bara einhver hormónageðveiki, og svo springur þetta allt. En með strákana sem ég þekki, þá er þetta bara: æj, já, ok, já, við nennum þessu ekki.“

Hann bendir þó á að það séu líka fullt af körlum sem séu „dramadrottningar“ og „vilja bara lifa á leiðindum,“ rétt eins og sumt kvenfólk.

Hommakommúna sem lausn?

Erpur endar pælinguna á gamansaman hátt:
„Ég myndi halda að það væri þægilegt ef við værum allir rammsamkynhneigðir og myndum bara búa í einhverri rapp-hommakommúnu.“

Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum en ef þú vilt horfa á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hér.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing