Mótmælendur söfnuðust saman við heimili fjölskyldu mannsins sem myrti Henry Nowak

Stór hópur mótmælenda safnaðist saman í Southampton eftir að Vickrum Digwa var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á 18 ára háskólanemanum Henry Nowak. Mótmælin beinast bæði að meðferð lögreglu á Nowak áður en hann lést og að fjölskyldu Digwa, sem hjálpaði til við að hylma yfir með honum.

Samkvæmt færslum á samfélagsmiðlum og fréttaflutningi frá Bretlandi safnaðist fjöldi fólks saman við heimili Digwa fjölskyldunnar þar sem kallað var eftir því að fjölskyldan yrði fjarlægð af svæðinu. Mótmælendur lýstu einnig reiði sinni yfir því að aðrir fjölskyldumeðlimir væru enn á ferð í borginni þrátt fyrir sakfellingar sem tengjast málinu.

Auglýsing

Móðirin dæmd fyrir að fjarlægja morðvopnið

Vickrum Digwa, sem er 23 ára gamall, var dæmdur í lífstíðarfangelsi með lágmarksafplánun upp á 21 ár eftir að hafa verið fundinn sekur um morð og vopnaburð á almannafæri.

Móðir hans, Kirun Kaur, var einnig dæmd fyrir að hafa aðstoðað sakborning með því að fjarlægja morðvopnið af vettvangi eftir árásina.

Samkvæmt færslum sem hafa farið víða á samfélagsmiðlum hafi fjölskyldan jafnframt sakað dómarann í málinu um kynþáttafordóma eftir að dómur féll yfir Digwa og hrópaði að Nowak fjölskyldunni að þau væru rasista meðan á réttarhöldunum stóð.

Mikil mótmæli í Southampton

Mótmælin koma í kjölfar stórs fundar fyrir utan lögreglustöðina í Southampton þar sem yfir þúsund manns komu saman til að krefjast réttlætis fyrir Henry Nowak. Þar var meðal annars haldin mínútuþögn til minningar um hann.

Síðar um kvöldið brutust út átök milli hluta mótmælenda og óeirðalögreglu. Kveikt var í ruslagámum og hlutum kastað að lögreglumönnum. Lögregla staðfesti að einn einstaklingur hefði verið handtekinn í tengslum við óeirðirnar.

Mál Nowak hefur vakið gífurlega reiði í Bretlandi eftir að upptökur úr búkmyndavél lögreglu sýndu hvernig Nowak var handjárnaður skömmu áður en hann lést af stungusárum sínum og beinist reiðin þó mest að aðferðum lögreglunnar, sem hefur lengi verið ásökuð um að vera þjálfuð til að koma öðruvísi fram við hvíta en aðra hópa.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing