Myndband sem lofar karlmönnum 3 milljón dollurum fyrir að flytja til Íslands í umferð á netinu

Myndband á Youtube hefur vakið mikla athygli á undanförnum dögum og fengið tugþúsundir áhorfa.

Í því er haldið fram að fólk geti fengið allt að þrjár milljónir dollara (rúmar 300 milljónir íslenskra króna) fyrir að flytja til smábæjar á Íslandi og búa þar í að minnsta kosti þrjú ár.

Auglýsing

Fullyrðingarnar standast hins vegar enga skoðun eins og lesendum Nútímans ætti að vera ljóst.

Myndbandið, sem birtist undir notendanafninu @SultanBeshir-n1x, ber yfirskriftina „$3 Million to Live in a Small Town in Iceland“ og er sett fram eins og um sé að ræða einhvers konar tilraun eða sérstakt átaksverkefni íslenskra stjórnvalda til að byggja upp fámenn byggðarlög.

Þar er meðal annars sagt að Bandaríkjamenn fái bæði eingreiðsluna og mánaðarlegan styrk upp á 3.000 dollara til framfærslu.

Getur skapað rangar væntingar

Aldrei hefur verið boðið upp á beina fjárgreiðslu til einstaklinga fyrir það eitt að flytja til Íslands en ekki ósvipuð mýta fór um netheima fyrir nokkrum árum þar sem því var haldið fram að karlmenn gætu fengið allt að 500 þúsund krónur á mánuði fyrir það eitt að giftast íslenskum konum.

Þetta varð til þess að mikill fjöldi íslenskra kvenna og oft barnungra stúlkna, urðu fyrir gífurlegu áreiti frá mönnum sem sáu sér gott til glóðarinnar.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing