Að minnsta kosti níu létust og 25 særðust í skotárás í framhaldsskóla í Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu í Kanada. Árásarmaðurinn fannst látinn á vettvangi og er talið að viðkomandi hafi svipt sig lífi.
Lýst sem „konu í kjól með brúnt hár“
Í neyðarviðvörun sem send var út á farsíma íbúa var árásarmanninum lýst sem „konu í kjól með brúnt hár“. Lögregla hefur ekki enn birt nafn né staðfest aldur viðkomandi.
Yfirlögregluþjónn hjá Royal Canadian Mounted Police, Ken Floyd, staðfesti á blaðamannafundi að sá sem fannst látinn í skólanum væri hinn grunaði árásarmaður. Hann vildi þó ekki á þessu stigi fara nánar út í kyn, kynvitund eða bakgrunn viðkomandi og sagði rannsókn enn á frumstigi.
Átta fundust látnir í skólanum
Átta létust inni í Tumbler Ridge Secondary School, þar á meðal árásarmaðurinn. Sjötta fórnarlambið lést af sárum sínum á leið á sjúkrahúsð. Þá fundust tvö lík á heimili í bænum og er talið að það tengist árásinni.
Alls voru 27 fluttir á sjúkrahús, þar af tveir í lífshættu.
Nemendur lýsa því hvernig þeir byrjuðu að byrgja dyr kennslustofa með borðum þegar neyðarlokun var tilkynnt. Þeir dvöldu inni í rúmar tvær klukkustundir þar til lögregla fylgdi þeim út.
Tumbler Ridge er lítill fjallabær með um 2.400 íbúa. Skólarnir í bænum verða lokaðir út vikuna og áfallateymi hafa verið send á svæðið.
Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, sagðist miður sín vegna árásarinnar og sendi fjölskyldum fórnarlamba samúðarkveðjur. Forsætisráðherra Bresku Kólumbíu, David Eby, sagði stjórnvöld tryggja alla mögulega aðstoð við samfélagið á næstu dögum.
Rannsókn málsins stendur yfir og ekki hefur enn verið upplýst um hugsanlega ástæðu árásarinnar.