„Nú ætla ég að droppa einni hérna – Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar,mætti nýverið í hlaðvarpið Bjórkastið ásamt Frosta Logasyni og ræddi þar við þáttastjórnendur um ýmis samfélags- og kjaramál.

Þar ræddi hún meðal annars rétt til atvinnuleysisbóta og gagnrýndi viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við hugmyndum um breytingar á kerfinu.

Ræðir mögulega styttingu bótaréttar

Auglýsing

Í samtalinu kom Sólveig inn á umræðu að atvinnuleysisbótaréttur yrði styttur úr 30 mánuðum í 18 mánuði.

„Ég ætla bara að droppa einni hérna, að nú til dæmis á að minnka atvinnuleysisbætur úr 30 mánuðum niður í átján mánuði,“ sagði hún.

Að hennar mati hafi viðbrögð innan verkalýðshreyfingarinnar verið undarlegar.

„Íslenska verkalýðshreyfingin er trítilóð yfir þessu. Ég persónulega skil ekki yfir hverju hasarinn er,“ bætti hún við.

Telur 30 mánuði ekki nauðsynlega við núverandi aðstæður

Sólveig sagði eðlilegt að ræða breytingar á bótarétti í ljósi þess að atvinnuleysi á Íslandi sé almennt lágt.

„Það má kannski lækka þetta í smærri skrefum, en í landi þar sem að yfirleitt er ekki mjög mikið atvinnuleysi þá tel ég ekki nauðsyn að atvinnuleysisbótarétturinn sé 30 mánuðir,“ útskýrði hún.

Hún bætti við að langvarandi atvinnuleysi í slíku samhengi gæti bent til annarra vandamála.

„Ef þú ert atvinnulaus í landi þar sem er mjög lítið atvinnuleysi í 30 mánuði, þá mögulega er eitthvað annað sem þú ert að glíma við heldur en bara atvinnuleysi,“ sagði hún.

Vilji til að hækka aftur í krísu

Sólveig lagði áherslu á að breytingar á bótarétti þýddu ekki að útilokað væri að hækka hann aftur ef ástandið breyttist skyndilega.

Í framhaldinu tók Helgi, einn þáttastjórnenda, undir að í krísu mætti grípa til sérstakra aðgerða, til dæmis með neyðarlögum.

Sólveig var sammála því og sagði verkalýðshreyfinguna eiga að treysta eigin samningsstöðu gagnvart stjórnvöldum.

„Íslensk verkalýðshreyfing á að hafa sjálfsöryggi og traustið til þess að geta sagt: ok, það er hægt að lækka bótaréttinn um einhverja mánuði, en við erum sammála um það að ef það kemur hrun eða COVID eða eitthvað ömurð, þá þurfum við að hækka hann aftur,“ sagði hún.

Hún taldi ekki eðlilegt að 30 mánaða bótaréttur gilti þegar ekkert krísuástand væri til staðar.

„Þá er bara samkomulag um það og verkalýðshreyfingin á að hafa bara sjálfstraustið til þess að vita að hún mun geta fengið það út frá stjórnvöldum. Það á ekki að vera að insistéra á það að þetta þurfi alltaf að vera svona,“ sagði Sólveig.

Að lokum bætti hún við að hún gerði ráð fyrir hörðum viðbrögðum við þessum sjónarmiðum.

„Nú verð ég sennilega drepin.“

Brotið sem vísað er í er hér fyrir neðan en neðst í fréttinni er svo hægt að horfa á allan þáttinn.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing