Nýja „Snow White“ kvikmyndin á leið með að verða eitt mesta flopp í sögu Disney – Leikkonan Rachel Zegler sögð ábyrg að miklu leyti

Disney hefur verið duglegt við að endurgera sígildar myndir sínar en notast nú við raunverulega leikara eða tæknibrellur en slíkar myndir kallast „live action“ og hafa flestar notið mikilla vinsælda.

Disney hefur þegar gert slíkar útgáfur af Aladdín, Lion King og Fríðu og dýrinu en nú hefur sú nýjasta bæst í hópinn.

Dauðadæmd frá upphafi?

Auglýsing

Nýja „Snow White“, eða Mjallhvít, live action myndin frá Disney, sem kostaði rúmar 270 milljónir dala í framleiðslu og endurtökur (reshoots), olli miklum vonbrigðum á opnunarhelginni og þykir nú líkleg til að verða eitt mesta fjárhagslega matröð í sögu fyrirtækisins.

Mjallhvít á sérstakan stað í hjörtum Disney aðdáenda, enda þeirra allra fyrsta teiknimynd í fullri lengd og án efa ein af sígildum verkum kvikmyndasögunnar.

Það er sjaldnast tekið með í kostnaði hver kostnaður er við markaðssetningu mynda en oftast er það ekki lægri upphæð en kostaði að gera myndina, sérstaklega þegar um slíkar stórmyndir er að ræða.

Því hefur verið sagt að myndin þurfi að hala inn að lágmarki 450-500 milljónir dollara bara til að skila ekki tapi.

Tekjur opnunarhelgarinnar á heimsvísu námu einungis 87 milljónum dala, þar af aðeins 43 milljónum í Bandaríkjunum – langt undir væntingum fyrir kvikmynd sem átti að vera ein af stórmyndum ársins í anda frumútgáfunnar frá 1937.

Aðalleikkonan með mesta markaðsklúður sögunnar

Margir innan iðnaðarins telja að umdeild framganga aðalleikkonunnar Rachel Zegler hafi átt stóran þátt í fallinu.

Strax árið 2022 fór samband hennar við Disney að versna þegar hún gagnrýndi opinberlega „West Side Story“ markaðsherferðinaherferðina og sagði Disney ekki hafa boðið sér á Óskarsverðlaunahátíðina.

Hún gagnrýndi síðar upprunalegu teiknimyndina og sagði hana ekki eiga heima í nútíma samfélagi og að prinsinn væri einskonar eltihrellir.

Staðan versnaði í ágúst 2024 þegar Zegler tvítaði „Free Palestine“ rétt eftir að hafa kynnt stiklu myndarinnar á D23 viðburðinum.

Tístið fór sem eldur í sinu á samfélagsmiðlum og olli titringi innan Disney, ekki síst þar sem Gal Gadot, meðleikkona hennar, er ísraelsk.

Gadot þurfti aukna öryggisgæslu í kjölfarið eftir að henni var ítrekað hótað lífláti.

Í kjölfar sigurs Donalds Trump í forsetakosningunum í nóvember bætti Zegler olíu á eldinn með Instagram færslu þar sem hún sagði „Fuck Donald Trump“ og óskaði þess að stuðningsmenn hans myndu aldrei verða ánægðir í lífinu.

Þá fannst Disney nóg komið.

Framleiðandinn Marc Platt fór fram á að hún hætti sjálfstæðum samfélagsmiðlaskrifum, og Disney réð sérstakan ráðgjafa til að stýra öllum færslum hennar fram að frumsýningu í mars 2025 enda hafði hún skrifað upp á samning þar sem henni voru greiddar margar milljónir dollara fyrir að leika í myndinni og kynna hana opinberlega.

Í staðinn blandaði hún saman vinnu sinni fyrir Disney og persónulegum skoðunum um eldfim málefni og tókst á einhvern ótrúlegan hátt að fá alla upp á móti sér.

 

Hefði kannski haft það af ef hún hefði ekki verið svona léleg

Sérfræðingar telja að öll þessi neikvæða umfjöllun hafi í raun gert út af við myndina áður en hún kom út.

„Þetta hefði átt að verða mynd sem rakaði inn peningum en í staðinn mun þetta líklega verða dýrasta „flopp“ allra tíma,“ sagði einn stúdíofulltrúi í samtali við tímaritið Variety.

Myndin hefði mögulega lifað af fjölmiðlaklúður Zegler ef hún góð, segir einnig í greininni en stiklur úr myndinni gerðu það að verkum að myndin varð að athlægi, meðal annars fyrir dvergana sem eru sagðir vera „eins og klipptir út úr verstu martröð.“

Stiklan er einnig sú sem hefur fengið flest „dislikes“ af öllum kvikmyndum í sögu Youtube með rúmlega tvær milljónir dislikes gegn aðeins tæplega 70 þúsund likes.

 

Leikkonunum hald frá hvor annarri

Þrátt fyrir slúður um spennu milli aðalleikkvennanna tveggja átti Zegler í raun góðu samstarfi við Gadot við tökur, en Disney valdi að halda þeim aðskildum á ýmsum viðburðum í aðdraganda frumsýningar til að koma í veg fyrir frekari fjölmiðlafár.

Ef ekkert kraftaverk á sér stað í miðasölunni næstu vikurnar, virðist sem Disney þurfi að horfast í augu við að „Snow White“ er ekki aðeins fjárhagslegt áfall, heldur einnig birtingarmynd þess vanda sem kvikmyndarisinn glímir við en fyrirtækið er sakað um að stunda linnulausan áróður þegar kemur að bæði kynja- og kynþáttapólitík.

Sonur framleiðandans svarar fyrir föður sinn

Enn meiri athygli vakti mál Rachel Zegler þegar Jonah Platt, sonur áðurnefnds framleiðanda, Marc Platt, svaraði gagnrýnanda á Instagram sem hafði fordæmt það að faðir hans hefði flogið til New York til að ávíta unga leikkonu fyrir að tjá sig á samfélagsmiðlum.

Jonah svaraði af hörku og sagði föður sinn hafa þurft að leggja fjölskyldulíf sitt til hliðar til að bregðast við því að 20 ára starfsmaður hefði dregið persónulega pólitík inn í kynningu á margra milljóna dollara Disney mynd.

Hann sagði þetta snúast um ábyrgð og afleiðingar fullorðins einstaklings og benti á að hegðun Zegler hefði skaðað afkomu allra sem unnu að myndinni.

„Narcissismi er ekki eitthvað sem á að hlífa eða hvetja til,“ skrifaði hann, en Zegler hafði þá aftur gerst sek um að senda Palestínu sérstakan stuðning í tísti sem ætlað var að kynna kvikmyndina og hafði í raun gerst brotleg við samninginn sem hún hafði skrifað undir og fékk hundruði milljóna greiddar fyrir.

Skilaboðin sem sonur framleiðandans skrifaði á Instagram

 

Vafasöm met þegar slegin

Að lokum ber að nefna að viðtökur almennings eru í samræmi við þessa stormasömu vegferð myndarinnar.

„Snow White“ situr nú með einungis 1,6/10 í einkunn á IMDb þegar þetta er skrifað þar sem næstum 200.000 einstaklingar sem hafa gefið henni einkunn.

Myndin er með aðeins 1,5 af10

Þessi einkunn er það lægsta sem Disney mynd hefur fengið og það lægsta sem live-action mynd sem byggð er á teiknimynd hefur fengið en fyrra metið átti Dragonball Evolution, sem gerð var eftir hinum geysivinsælu þáttum Dragonball Z.

Sú mynd er mep 2,5/10 í einkunn á IMBD og er almennt talin vera það versta sem komið hefur fyrir þessa tegund kvikmynda…..Þar til nú.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing