Kristinn Theodórsson skrifar:
Þegar Ágústa Eva tók sig til og fór að andmæla bólusetningum barna gegn Covid árið 2022 var hún búin að vera súperstjarna á Íslandi í hátt í 20 ár. Hún var hin ógleymanlega Sylvía Nótt í Júró 2006. Hún var rödd Elsu í Frozen árið 2013 og söng hið geysivinsæla lag „Þetta er nóg“ (Let It Go). Hún og Magni komu svo með „Þegar storminn hefur lægt“ í lok árs 2020 og ímynd Ágústu var þá orðin eins aðlaðandi og hugsast gat. Hún var elskuð af öllum.
Frá þjóðareign í umdeilda fígúru
Það sló því marga þegar hún tók skyndilega að sér að vera rödd uppreisnar gegn bólusetningum barna þegar Covid gekk yfir heiminn. Hún var með erfiðan málstað og fólk sem hafði eitthvað út á sóttvarnaraðgerðir að setja var á þeim tíma gjarnan umsvifalaust stimplað sem samsæriskenningafólk, kallað „anti-vax“ og sakað um að hafna vísindalegri þekkingu.
Þess háttar vangaveltur voru auk þess gjarnan tengdar við öfgahægri pólitík og Trumpisma. Hin fullkomna, holdgerða Elsa úr Frozen var því allt í einu orðin umdeild og óþægileg fígúra sem truflaði geð íslenskra góðborgara og olli mörgum vonbrigðum.
Núna, árið 2026, má þó færa nokkuð sterk rök fyrir því að Ágústa Eva hafi haft nokkuð til síns máls. Ýmsar þjóðir fóru enda að mestu þá leið sem hún mælti fyrir og gögnin sýna ekki að það hafi verið alvarlegur sóttvarnarlegur afleikur. Þvert á móti kann sú leið jafnvel að hafa verið skynsamlegri með tilliti til annarra hagsmuna og afleiðinga.
Tilraunalyf eða fullreynd bóluefni?
„Tilraunalyf“ er orðið sem málið hverfist um. Nýju mRNA-bóluefnin fengu neyðarleyfi undir lok árs 2020 og snemma árs 2021 höfðu þau aðeins verið prófuð í nokkra mánuði í klínískum tilraunum. Það var því tæknilega séð ekki hægt að útiloka að þau gætu haft aukaverkanir eða óvænt langtímaáhrif.
Á þeim tíma þótti hins vegar gríðarlega mikilvægt að fá fólk til að láta bólusetja sig og því var áhersla lögð á öryggi og virkni lyfjanna fremur en þá staðreynd að langtímagögn lágu, eðli málsins samkvæmt, ekki fyrir. Vissulega var þó hægt að vísa til þess að grunnrannsóknir á mRNA-tækni höfðu staðið yfir í áratugi, meðal annars vegna SARS-1 og MERS.
Hvort nota ætti „tilraunalyfið“ á börn og unglinga, sem upplifðu Covid oftast sem væga flensu, var því mjög eðlileg spurning. Auk þess var þá komið í ljós að bólusett börn gátu áfram borið smit og bólusetning þeirra hafði því ekki þau áhrif sem upphaflega hafði verið gert ráð fyrir og höfðu verið hluti af rökstuðningnum.
Þetta voru skiljanlegar vangaveltur en þær voru pólitískt eitraðar og félagslega dýrkeyptar.
Grímuskylda í skólum
Ágústa gagnrýndi einnig grímuskyldu í skólum og kallaði hana „leikrit“ og „stjórntæki“. Gögnin sýna í dag að grímunotkun barna í skólum hafði afar lítið að segja og sumar rannsóknir benda til þess að kennarar hafi ekki verið í aukinni smithættu þótt grímur væru ekki notaðar.
Þess má einnig geta að jafnvel meðal fullorðinna sýna gögn oft lítið sem ekkert gagn af ódýrum grímum. Samanburður milli bandarískra ríkja, með og án grímuskyldu, hefur til dæmis sýnt lítinn eða engan mun á heildarsmitum eða dánartíðni til lengri tíma.
Afleiðingar skólalokana
Skólalokanir voru svo síðasta stóra atriðið sem hún lagðist gegn. Þegar áhrif þeirra eru skoðuð í dag er ljóst að félagslegar og menntunarlegar afleiðingar voru verulegar, en veikindi barna vegna Covid oftast viðráðanleg. Skólum hér á landi var sjaldan formlega lokað en þeir voru engu að síður nánast lokaðir á köflum vegna smita.
Það vakir ekki fyrir undirrituðum að gera lítið úr því að þjóðin stóð frammi fyrir flóknum og erfiðum ákvörðunum. Leiðin sem var farin var líklega ágæt og við getum vel við hana unað.
Við eigum þó að reyna að læra af þessum atburðum. Þegar deilt er um lausnir og nálganir eru broddflugur og efasemdafólk ekki endilega andvísindalegt samsæriskenningafólk sem rétt sé að hreyta ónotum í og líta hornauga.
Skiljanlegar efasemdir
Ágústa Eva stóð sig hreinlega vel. Hún setti fram ósköp skiljanlegar hugmyndir um að óþörf áhætta gæti falist í því að bólusetja börn og að ekki ætti að raska skólastarfi með lokunum og grímunotkun.
Höfundur er dulítill heimspekingur og áhugamaður um allt mannlegt.
Heimildir og gögn sem stuðst er við:
-
Cochrane Library (2023): Physical interventions to interrupt or reduce the spread of respiratory viruses (úttekt á grímunotkun).
-
New England Journal of Medicine (NEJM, 2021): Open Schools, Covid-19, and Child and Teacher Health in Sweden (rannsókn á skólastarfi og smithættu kennara).
-
The Lancet (2021): Transmission dynamics of SARS-CoV-2 Delta and Omicron variants in vaccinated populations.
-
UNICEF/UNESCO (2022): The State of the Global Education Crisis (skýrsla um félagslegar og menntunarlegar afleiðingar skólalokana).
-
U.S. FDA og EMA (2020–2021): Reglugerðargögn um neyðarleyfi (Emergency Use Authorization, EUA) fyrir mRNA-bóluefni.