Timbursalinn Páll Jónsson segir að það sé „mikill sigur í sjálfu sér“ að komið hafi í ljós að timbur sem honum var sagt að hefði verið fargað sé í raun enn til og í vörslu Lands og skóga. Hann segir málið þó langt frá því að vera búið.
Í samtali við Nútímann rifjar Páll upp að Héraðsdómur hafi vorið 2023 dæmt honum til afhendingar á gámi sem tengdist málinu og að sú niðurstaða hafi verið staðfest í Landsrétti 24. september 2024.
„Lögreglan þráaðist hins vegar við, neitaði mér afhendingu og sagði að búið væri að farga timbrinu. Hvað kemur svo í ljós núna?“ segir hann.
Land og skógur staðfestir móttöku á haldlögðu timbri frá lögreglu
Segir sumarhúsagám og fíkniefnagám hafa verið ruglað saman
Páll heldur því fram að um hafi verið að ræða tvo aðskilda gáma sem hafi ranglega verið tengdir saman í meðferð lögreglu.
Að hans sögn hafi fyrri gámurinn, sem kom til landsins í lok janúar 2022, innihaldið tilsniðið timbur í 125 fermetra sumarhús. Sá gámur hafi farið í gegnum vöruskoðun án athugasemda og hann hafi sjálfur tekið við honum 2. febrúar sama ár og flutt timbrið í annan gám til geymslu.
Síðar, í júlí 2022, hafi komið annar gámur sem tengdist sakamálinu. Í honum hafi samkvæmt Páli verið „99 kíló af hveiti eða gerviefni“ sem lögregla hafi sett í stað fíkniefna erlendis.
„Þannig að efnin sem menn voru dæmdir fyrir að smygla til landsins komu aldrei til Íslands, eins undarlega og það kann að hljóma.”
„Þessi gámur með sumarhúsinu var algjörlega óviðkomandi þeirri sendingu sem sakamálið snerist um,“ segir hann og bætir við að hann telji að lögregla hafi blandað þessum tveimur sendingum saman.
Segir gjaldþrot byggjast á röngum forsendum
Páll segir að meðferð málsins hafi haft veruleg áhrif á rekstur félags hans, Hús og harðviður ehf., sem síðar var tekið til gjaldþrotaskipta.
Hann berst nú fyrir endurupptöku gjaldþrotamálsins og telur að ef timbrið hafi verið raunveruleg eign á þeim tíma sem gjaldþrotið var úrskurðað hafi mat á fjárhagsstöðu félagsins verið rangt.
„Ég er að berjast núna gegn því að fyrirtæki mitt sé úrskurðað gjaldþrota út af þessari dellu,“ segir hann.
Krefst ábyrgðar
Páll segir vinnubrögð lögreglu í málinu „óskiljanleg“ og telur að einhver þurfi að axla ábyrgð ef staðfest verði að rangar upplýsingar hafi verið veittar um afdrif haldlagðra muna.
Nútíminn hefur áður óskað eftir skýringum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um meðferð timbursins, en svör hafa ekki borist.