PLAY býður Hlyni fulla endurgreiðslu eða nýtt flug vegna vandræða hans

Flugfélagið PLAY hefur brugðist skjótt við í máli Hlyns Þórissonar, sem lá á gjörgæslu og fékk aðeins 1.732 krónur endurgreiddar þrátt fyrir að hafa keypt dýrasta miða með forfallatryggingu.

Nútíminn sagði frá málinu fyrr í dag.

Hlynur keypti dýrustu tryggingu PLAY – lá á gjörgæslu en fékk aðeins 1.732 króna endurgreiðslu

Auglýsing

Flugfélagið hefur nú brugðist við og boðið annað hvort fulla endurgreiðslu eða nýtt flug.

Í yfirlýsingu frá PLAY segist félagið fyrst hafa fengið skilaboð frá systur Hlyns þann 31. mars, aðeins tveimur dögum fyrir brottför, þar sem fram kom að hann væri á sjúkrahúsi.

Mikill misskilningur milli málsaðila

Þjónustufulltrúi hafi svarað strax og útskýrt að breytingar á flugi yrðu að fara fram minnst klukkustund fyrir brottför.

Engin beiðni um breytingu eða endurgreiðslu hafi þó borist fyrir brottför samkvæmt félaginu og virðist misskilningurinn milli aðila málsins vera í þessum viðbrögðum.

Flugfélagið hafi beðið eftir endurbókun Hlyns, sem var ekki fær um að sjá um slíkt í því ástandi sem hann var í.

Fjölskylda Hlyns virðist hins vegar hafa tekið svarinu við að ekki væri vitað hvenær Hlynur gæti flogið sem staðfestingu á að hann gæti látið vita hvenær hann fengi leyfi frá lækni.

Hlynur hafi svo sjálfur haft samband 13. apríl með beiðni um að færa flugið, en þá hafi tryggingartímabilið verið runnið út.

Félagið segist ekki hafa fengið frekari upplýsingar um ástand hans á þessum tíma.

„Við höfum nú fengið að heyra alla söguna,“ segir í yfirlýsingunni, „og erum því tilbúin til að endurgreiða flugið eða bóka nýtt flug fyrir hann.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing