„Rándýrt kukl í kynjafræðum kostar skattgreiðendur milljarða“ – Áhrif samtakanna 78 í skólakerfinu

Jóhannes Loftsson, verkfræðingur, frumkvöðull, formaður Frjálshyggjufélagsins og Ábyrgrar Framtíðar, skrifar harðorða gagnrýni á aðkomu Samtakanna 78 að kennslu í skólum og tengir hana við mikla fjölgun barna sem skilgreina sig sem trans.

Hann bendir á að sú þróun hafi átt sér stað samhliða innleiðingu nýs námsefnis sem fjallar um kynvitund og telur líklegt að það efni sé aðaldrifkrafturinn að þeirri aukningu.

Auglýsing

Jóhannes bendir á að þessi breyting á kynvitund barna leiði í mörgum tilvikum til lyfjameðferða og aðgerða sem hann lýsir sem „lýtaaðgerðum“ fremur en raunverulegri „kynskiptingu“, þar sem „genin haldist óbreytt“.

Hann gagnrýnir harðlega að slík meðferð sé kynnt börnum í skólum með aðstoð hagsmunasamtaka og segir þar blasa við gríðarlega fjárhagslega hvata og mögulegt peningasvindl.

Vafasamar aðgerðir og skortur á vísindalegum grunni

Jóhannes vísar í nýlegar uppljóstranir um starfsemi alþjóðasamtakanna WPATH, sem hann segir íslensk yfirvöld hafa ráðfært sig við og notað sem viðmið í þessum efnum.

Þar hafi komið fram að aðgerðirnar séu oft framkvæmdar án nægilegs samþykkis, á einstaklingum með geðræn vandamál og án trausts vísindalegs grundvallar um gagnsemi þeirra.

Fjöldi skýrslna hafi sýnt fram á sama: að hættan og óvissan séu meiri en áður var talið.

Milljarðakostnaður vegna ævilangrar meðferðar

Í færslu sinni dregur hann fram að heildarkostnaður einstaklinga sem fari „alla leið“ í slíkar aðgerðir geti hlaupið á 20–50 milljónum króna á mann, þar sem skurðaðgerðir, ævilöng lyfjameðferð og sálfræðiþjónusta vegi þungt.

Hann segir þessi útgjöld að lokum lenda á íslenskum skattgreiðendum, sem geti átt von á milljarðakostnaði í framtíðinni.

Kallar eftir að samstarf við Samtökin 78 verði stöðvað

Í lokin fer Jóhannes fram á að allt samstarf stjórnvalda við Samtökin 78 sem snýr að kennslu barna verði stöðvað samstundis.

Hann segir ótækt að leyfa samtökum sem hafi fjárhagslega hagsmuni af slíkum aðgerðum að hafa áhrif á viðkvæman hóp eins og börn í íslensku skólakerfi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing