Reyndu að halda AfD frá kjörseðlinum – Dómstólar knúðu fram nýjar kosningar og AfD skaust í annað sætið

AfD varð næststærsti flokkurinn í kosningu til héraðsþings Saarbrücken svæðisins í Þýskalandi á sunnudag, sem þurfti að endurtaka tveimur árum eftir að flokknum var meinað að taka þátt í sömu kosningu. Endurtekningin var ákvörðun sem dómstólar þvinguðu í gegn eftir að fyrri kosning var úrskurðuð ólögleg.

Flokkurinn fékk 22,8 prósent atkvæða og tíu af 45 sætum. Jafnaðarmannaflokkurinn SPD, sem stendur vinstra megin við miðju og leggur áherslu á öflugt velferðarkerfi og réttindi launafólks, hélt fyrsta sætinu með 25,8 prósent og tólf fulltrúa.

Auglýsing

Kristilegi demókrataflokkurinn CDU, mið-hægriflokkur sem leggur áherslu á markaðshagkerfi og íhaldssöm gildi, hrundi úr 32,2 prósentum árið 2024 niður í 18,9 prósent og tapaði sex sætum.

Þetta verða að teljast sögulegar kosninar því svæðið hefur hallast mikið til vinstri í kosningum undanfarna áratugi.

Dómstólar ógiltu fyrri kosningu

AfD hafði lagt fram tvo framboðslista fyrir kosninguna árið 2024 vegna deilna innan flokksins. Kjörstjórn hafnaði þeim báðum á þeirri forsendu að flokki væri óheimilt að leggja fram fleiri en einn lista.

Flokkurinn fór með málið fyrir dómstóla, sem komust að þeirri niðurstöðu að samþykkja hefði átt annan listann þar sem sá fyrri hefði verið löglega dreginn til baka. Kosningin var því dæmd ógild og ný kosning fyrirskipuð.

Alice Weidel, formaður AfD, vakti athygli á niðurstöðunni á X og sagði hana sýna að tilraunir til að útiloka flokkinn frá kosningum gerðu ekkert nema styrkja hann.

Innflytjendamál lykilatriði

Velgengi AfD hefur ekki síst verið tengt harðri afstöðu flokksins í innflytjendamálum.

Nýleg rannsókn vísindamanna við Háskólann í Saarlandi, sem byggði á meira en 110 þúsund svörum frá tæplega 32 þúsund manns, leiddi í ljós að innflytjendastefna landsins væri stærsta kosningamál kjósenda.

Þrumuræður Weidel fara aftur í dreifingu

Í ræðu á CPAC áðstefnunni í Búdapest í maí 2025 sagði Weidel stöðu Þýskalands ekki góða.

„Massainnflutningur, stóraukin glæpatíðni, háir skattar og þöggun á andstæðum skoðunum. Valdstjórnin vill banna sterkasta stjórnarandstöðuflokkinn, okkur. Þetta er fáránlegt. En þeim mun ekki takast það,“ sagði hún.

Rúmum mánuði síðar flutti Weidel aðra harða ræðu á þýska þinginu þar sem hún beindi spjótum sínum að stuðningsmönnum óbreyttrar innflytjendastefnu.

„Ef þið styðjið þessa stefnu opinna landamæra, takið þá næstu afgönsku fjölskyldu inn á heimili ykkar, búið með henni og sjáið hvernig það samræmist hinsegin lífsstíl ykkar,“ sagði Weidel.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing