Ríkisstjórn Bretlands: Réttindi hælisleitenda vega þyngra en réttindi íbúa á svæðinu

Breska innanríkisráðuneytið heldur því fram að réttindi hælisleitenda vegi þyngra en réttindi íbúa í bænum Epping, í máli sem nú er til meðferðar fyrir áfrýjunardómstól í Bretlandi.

Nútíminn fjallaði áður um málið sem snýr að því að dómstóll úrskurðaði að loka þyrfti hóteli sem hýsti hælisleitendur að óska bæjaryfirvalda, vegna þess að með því að vera ekki að bjóða upp á gistinætur, uppfyllti hótelið ekki lengur þær kröfur sem þar til að hafa starfsleyfi.

Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar þurfa hælisleitendur að yfirgefa hótel í Epping þar sem mótmæli hafa geysað

Auglýsing

Epping Forest sveitarfélagið heldur því fram að eigandi hótelsins, Somani Hotels, hafi brotið skipulagsreglur með því að breyta notkun hótelsins án tilskilinna leyfa.

Lögmaður sveitarfélagsins sagði: „Somani vissi að notkun hótelsins sem athvarf fyrir hælisleitendur væri talin veruleg breyting á notkun, en sótti ekki um skipulagsleyfi.“

Hann bætti við að Somani hefði „veðjað á að sleppa við afleiðingar“ og ætti ekki raunhæfa möguleika á að vinna málið.

Innanríkisráðherra vill fá að koma að málinu

Yvette Cooper innanríkisráðherra berst nú fyrir því að fá að áfrýja þeirri ákvörðun að hælisleitendur megi ekki lengur dvelja á Bell Hotel í Epping eftir 12. september.

Lögmaður hennar sagði að dómari hafi ranglega útilokað ráðherrann frá málsmeðferð og fullyrti að hótelið væri hluti af „innviðum sem varða þjóðaröryggi“.

Hann sagði jafnframt: „Það eru þjóðarhagsmunir að tryggja að viðkvæmir einstaklingar, nánar tiltekið hælisleitendur, hafi húsaskjól.“

Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar stendur ekki til heimilislausir íbúar bæjarins fái að gista á hótelinu á kostnað yfirvalda.

Mótmæli og sakamál tengd hótelinu

Málið hefur vakið mikla athygli og fjöldi mótmæla hefur átt sér stað við hótelið en þar hafa verið hýstir hælisleitendur sem síðar hafa verið ákærðir fyrir alvarleg brot, meðal annars kynferðisbrot gegn unglingi.

Annar gestur hótelsins, Mohammed Sharwarq frá Sýrlandi, hefur verið ákærður fyrir sjö brot og nokkrir aðrir hafa verið kærðir vegna óeirða við hótelið.

Stórt fordæmi í húfi á landsvísu

Í skriflegum málflutningi fullyrti lögmaður hótelsins að dómurinn hefði möguleika á að setja fordæmi sem gæti leitt til þess að fleiri sveitarfélög færu fram á svipuð lögbönn gegn notkun hótela til að hýsa hælisleitendur.

Hann sagði að málið snerti þjóðaröryggi og mikilvæga stjórnsýsluákvörðun og ætti að fá efnislega meðferð fyrir áfrýjunardómstól.

Mögulegar afleiðingar málsins

Ef áfrýjun innanríkisráðuneytisins og Somani Hotels tekst, gæti Bell Hotel áfram hýst hælisleitendur eftir 12. september.

Verði hins vegar staðfest að úrskurður héraðsdóms hafi verið réttur, gæti það leitt til víðtækra mótmæla, aukinnar lagalegrar mótstöðu sveitarfélaga og grafið undan hælisumsóknarkerfi ríkisstjórnar Verkamannaflokksins.

Málið er nú til meðferðar fyrir áfrýjunardómstóli í London, þar sem þrír dómarar fara með málið: Lord Justice Bean, Lady Justice Nicola Davies og Lord Justice Cobb.

Niðurstöður eru væntanlegar síðar í dag.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing