„RÚV fær ekki upplýsingar um hópinn því við treystum þeim ekki til að gæta hlutleysis – Stofnunin er rúin trausti“

Fréttamaður RÚV hringdi í höfund greinarinnar ,,Segir með ólíkindum að Samtökin 78 fái aðgang að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum um börnsem birtist í Nútímanum.

Í greininni segir frá því að vegna samnings við Akureyrarbæ geti Samtökin 78 fengið aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum barna í grunnskólum bæjarins.

Segir með ólíkindum að Samtökin 78 fái aðgang að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum um börn

Auglýsing

Fréttamaður RÚV vildi fræðast um hópinn Drenglyndi.

Hvað hann væri fjölmennur, hvort höfundur vildi segja frá hópnum, hvort um kæru eða kvörtun væri til Persónuverndar væri að ræða, o.s.frv.

Til að gera langa sögu stutta, fékk fréttamaðurinn engar upplýsingar.

Hann fékk líka að vita að RÚV sé ekki treystandi fyrir umbeðnum upplýsingum vegna slagsíðu þeirra á umfjöllun um trans hugmyndafræðina.

Önnur hliðin heyrist, en hin er þögguð niður.

Að tala við fréttamenn RÚV, um trans hugmyndafræðina og allt sem tengist henni, -líka skaðseminni á börn- er gjörsamlega gagnslaust. Sannleikurinn mun ekki skila sér á miðla ríkissjónvarpsins. Þá er betur heima setið en af stað farið.

Abraham Lincoln sagði ,,Sú synd að þegja þegar maður ætti að mótmæla hefur gert marga að bleyðu.“

Nákvæmlega þetta á við þegar fréttamenn RÚV eru annars vegar.

Þeir þora ekki að fjalla hlutlaust um trans málaflokkinn eða segja frá því sem börn og konur þurfa að þola, og því er þeim ekki treystandi.

Reyndar má bæta fréttamönnum Sýnar við og þáttastjórnendum á þeirra vegum.

 

VIÐBÓT BLAÐAMANNS:

Pistlahöfundur sagði að margir meðlimir hópsins treystu sér ekki til að koma fram að svo stöddu vegna áreitis sem fólk hefur orðið fyrir í bænum vegna þessa.

Hún tekur hins vegar fram að hópurinn sé fjölmennur og sé samsettur af ósköp venjulegu fólki sem einfaldlega sé búið að fá nóg af þeirri innrætingu sem þau telja börn verða fyrir.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing