Þingkona sagði að ekki væri hægt að taka við of mörgum flóttamönnum – Mótmælir nú þegar til stendur að hýsa þá nálægt henni

Rachael Maskell, þingmaður Verkamannaflokksins í Bretlandi, mótmælir harðlega áformum um að hýsa um 1.200 hælisleitendur á fyrrverandi herflugvelli, sem staðsettur er skammt frá kjördæmi hennar.

Afstaðan hefur vakið athygli í ljósi þess að Maskell hvatti árið 2015 til þess að Bretland tæki við mun fleiri flóttamönnum. Þá gerði hún jafnframt lítið úr þeim áhrifum sem aukinn fjöldi flóttamanna kynni að hafa á heilbrigðisþjónustu, skóla og borgir landsins.

Auglýsing

Maskell segir nú að staðsetningin sé einfaldlega röng til að hýsa svo mikinn fjölda hælisleitenda og hefur skrifað ráðherra vegna málsins.

„20.000 er ekki nóg, 30.000 er ekki nóg“

Í ræðu á samstöðufundi með flóttamönnum í York í september árið 2015 kallaði Maskell eftir Bretland tæki við fleiri flóttamönnum vegna stríðsins í Sýrlandi.

„Við þurfum að tala miklu hærra um þetta og segja að 20.000 sé ekki nóg, 30.000 sé ekki nóg. Við verðum að halda áfram þar til ekki væri pláss fyrir fleiri,“ sagði Maskell.

Hún sagði jafnframt að Bretar ættu að vera tilbúnir að sætta sig við aukið álag á opinbera þjónustu.

„Hvaða máli skiptir það þótt við þurfum að bíða einni viku lengur eftir tíma á sjúkrahúsi, skólabekkirnir okkar verði aðeins stærri eða borgirnar aðeins fjölmennari? Hvaða máli skiptir það þótt hlutirnir verði aðeins erfiðari eða við þurfum að greiða aðeins meira inn í kerfið?“

Maskell sagði slíkt vera verð sem væri vel þess virði að greiða til að hjálpa flóttamönnum að endurbyggja líf sitt.

Segir innviðina ekki ráða við 1.200 hælisleitendur

Nú, ellefu árum síðar, mótmælir Maskell fyrirætlunum um að allt að 1.200 hælisleitendur verði vistaðir nálægt hennar umdæmi.

Hún segir staðsetninguna óhentuga og bendir meðal annars á takmarkaða vatns- og fráveitugetu, raforkukerfi svæðisins og lélegar almenningssamgöngur.

Þá hefur hún sérstaklega bent á að grunnskóli og leikskóli séu skammt frá herstöðinni og að aðeins fjórar rútuferðir séu á dag frá svæðinu til York.

Maskell hefur einnig lýst áhyggjum af því að flestir þeirra sem yrðu vistaðir á svæðinu væru einhleypir fullorðnir karlar. Ef stöðin yrði fullnýtt yrðu að hennar sögn um sex karlar á móti hverri konu á svæðinu.

„Þetta er einfaldlega rangur staður,“ sagði hún.

Hefur lengi kallað eftir auknum innflutningi hælisleitenda

Maskell hefur um árabil verið ein þeirra þingmanna Verkamannaflokksins sem talað hafa fyrir auknum innflutningi flóttamanna og hælisleitenda.

Hún hefur gagnrýnt hertar reglur stjórnvalda í innflytjendamálum og mótmælt tillögum um að lengja tíma sem innflytjendur þurfa að bíða áður en þeir geta fengið ótímabundið dvalarleyfi.

Maskell heldur því þó fram að hún sé ekki á móti því að Bretland taki við hælisleitendum heldur sé þessi tiltekna staðsetning óhentug.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing