Saksóknari gagnrýndur fyrir tilhæfulausa ákæru

Karlmaður var fyrr í þessum mánuði sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni og brot á barnaverndarlögum. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn þann 16. apríl sl. en málið var dómtekið þann 21. mars. Frosti Logason fjallaði um málið í nýjasti þætti Harmageddon á hlaðvarpsveitunni Brotkast.is þar sem hann fór ítarlega yfir dóminn og gagnrýndi.

Málið á sér rætur að rekja til brúðkaupsveislu sem fór fram í Garðabæ í júlí 2022 en þar var manninum gefið að sök að hafa áreitt 16 ára konu með því að hafa kysst hana á kinnina við bar veitingastaðarins, þar sem veislan fór fram, og síðar á dansgólfinu á hann að hafa strokið utan klæða yfir rass hennar og þrýst henni upp að sér gegn hennar vilja.

Í málinu virtist saksóknari hafa gefið út ákæru þrátt fyrir að öll gögn málsins hafi bent til þess að ásökun um kynferðislega áreitni hefði verið tilhæfulaus.

Auglýsing

Saksóknarinn, Fanney Björk Frostadóttir, taldi þó manninn hafa sýnt vanvirðandi háttsemi, yfirganga, ruddalegt og ósiðlegt athæfi auk þess að særa hana og móðga. Fyrir hönd ákærða krafðist saksóknari að maðurinn greiddi allan málskostnað ásamt því að greiða stúlkunni miska- og skaðabætur að fjárhæð 1.000.000 króna.

Í niðurstöðu Héraðsdóms var vitnað í myndbandsupptökur sem sýndu bæði manninn og stúlkuna ítrekað dansa saman og taka utan um hvort annað við barinn og samkvæmt dómi var ekki annað að sjá en að nokkuð vel hafi farið á þeim og einnig fleira fólki sem kom og fór.

Myndbandsupptökur frá barnum sýndu þá aldrei hinn meinta koss sem manninum var gefið að sök í ákæru og sömuleiðis sýndi myndbandsupptaka frá dansgólfinu að lýsingarnar sem birtust í ákæru áttu sér ekki stoð í raunveruleikanum, þar sem meðal annars var sagt að stúlkan hefði frosið.

„Var dansinn, sem stóð í um fjórar mínútur, nokkuð fjörlegur og nokkrum sinnum fór hönd ákærða yfir rasssvæði brotaþola. Ekki er hins vegar með góðu móti hægt að sjá að ákærði hafi þrýst brotaþola upp að sér,“ segir í dómnum.

Maðurinn sagði að enginn hafi haft samband við sig eftir veisluna fyrr en um mánuði síðar þegar lögregla hringdi í hann og boðaði hann í skýrslutöku.

Hann sagði að bæði málið og óvissan sem fylgdi í kjölfarið hefði haft mikil áhrif á líf hans í framhaldinu. Hann hefði til að mynda verið kvíðinn, átt erfitt með svefn, ekki getað borðað og fengið alvarleg kvíðaköst.

Allt fyrir opnum tjöldum

Málið er athyglisvert að því leytinu til að ekki var um að ræða atvik sem átti að hafa gerst bak við luktar dyr, heldur var um að ræða samkvæmisdans sem gerðist á dansgólfi fyrir framan fjölda vitna.

Í rannsókn lögreglu var einnig talað við nokkur vitni, sem stúlkan mun sjálf hafa kallað til. Ekkert þeirra vitna hafi hins vegar getað staðfest neitt af því sem átti að hafa gerst og samkvæmt ákæru var einnig greint frá tveimur vitnum sem áttu að hafa séð hinn umrædda dans og fundist hann athugaverður en þó ekki gert neitt í því.

„Sá vitnisburður brotaþola að vitnin D og C hafi orðið vitni að dansinum og greinilega fundist eitthvað athugavert við hann án þess að gera nokkuð á ekki stoð í framburði þessara vitna. Vitnin báru báðar fyrir dómi að þær hefðu ekki séð ákærða og brotaþola dansa saman og raunar báru þær um að hafa verið farnar áður en dansinn fór fram, ef tekið er mið af tímasetningu á upptöku úr eftirlitsmyndavélinni.“

Hvað varða samskipti mannsins og stúlkunnar við barinn á maðurinn að hafa kysst hana á kinnina. Hann neitaði því en sagði að þau hafi deilt sameiginlegum vinakossi fyrr um kvöldið. Þá var honum einnig gefið sök á að hafa sagt við stúlkuna að það hafi verið í lagi þar sem þau væru ekki skyld.

„Kvaðst ákærði hafa spilað þetta kvöld í hausnum á sér í tæp þrjú ár og hann myndi ekki eftir að hafa sagt þetta. Enn fremur kvaðst ákærði ekki skilja í hvaða samhengi þessi ummæli hefðu átt að falla því hann hefði ekki talið sig vera að koma öðruvísi fram við brotaþola en við frænkur sínar í veislunni.“

Barþjónninn, sem sá um afgreiðslu við hinn umrædda bar, bar einnig vitni í Héraðsdómi en sagðist heldur ekki hafa séð neitt óvenjulegt gerast þetta kvöld. Í vitnisburði sagðist stúlkan ekki hafa átt í neinum vandræðum með að fá afgreiðslu á barnum og að enginn hefði beðið hana um skilríki.

Vissi ekki til um aldur

Maðurinn hafði allan tímann neitað sök og þegar skýrslutaka fór fram í ágúst 2022 kvaðst hann heldur ekki hafa vitað aldur stúlkunnar en þó taldi að hún væri eldri en 20 ára þar sem hún hefði verið að drekka áfengi. Hann taldi sig heldur ekki hafa verið að reyna við stúlkuna eða upplifað kynferðislega löngun til hennar.

Stúlkan, sem er dóttir sambýlismanns systur móður mannsins, vildi hins vegar meina að hún og maðurinn höfðu margoft hist. Maðurinn vissi að umræddur faðir stúlkunnar ætti börn og sagðist hafa áttað sig á tengslunum síðar í veislunni en kannaðist ekki við nein bein samskipti í gegnum fortíðina.

Stjúpmóðir stúlkunnar staðfesti frásögn mannsins í vitnisburði og sagðist heldur ekki muna til þess að maðurinn og stúlkan hefðu einhvern tímann átt í beinum samskiptum eða verið saman í matarboðum, sem voru haldin reglulega á heimili þeirra.

Þá sagði stjúpmóðir stúlkunnar, sem var jafnframt móðir brúðarinnar, að brúðurin hefði ekki viljað bjóða stúlkunni í brúðkaupið þar sem hún treysti henni ekki og treysti því heldur ekki að stúlkan myndi láta áfengi vera. Stjúpmóðirin hefði síðan farið heim með stúlkuna í leigubíl en sagði að stúlkan hefði fyrst ekki viljað fara úr veislunni og sagði að það væri sennilega vegna þess að henni hefði þótt gaman.

Hljóð og mynd fara ekki saman

Í vitnisburði stúlkunnar fyrir dómi kom fram að hún hefði ekkert sagt við ákærða sem gæfi til kynna að henni líkaði ekki hegðun mannsins á dansgólfinu. Aðspurð hvers vegna hún gerði það ekki kvaðst hún hafa verið hrædd og vissi ekki hvort það væri eitthvað að segja.

Það hefði ekki verið fyrr en eftir að hún talaði við móður sína um nóttina sem hún hefði áttað sig á hvað hefði verið að gerast, þar sem móður hennar, sem lagði fram kæruna, hefði fundist atvikið svo svakalega alvarlegt.

Sá vitnisburður stangast hins vegar á við vitnisburð móðurinnar, sem sagði að stúlkan hafi vakið hana um miðja nótt þegar hún kom heim til hennar, verið í miklu uppnámi og farið að gráta þegar hún sagði frá upplifun sinni.

„Lýsing móðurinnar á því hvernig dóttir hennar kom fyrir sjónir þegar hún skýrði frá þykir ekki vera í fullu samræmi við vitnisburð brotaþola sjálfrar, sem lýsti því t.d. ekki að hún hefði grátið.“

Þá sagði hálfsystir stúlkunnar, sem var sögð hafa horft á stúlkuna og manninn dansa saman, í vitnisburði að aðild hennar að málinu stæðist heldur ekki þar sem hún hefði farið úr veislunni með leigubíl kl. 01:26, samkvæmt greiðslukvittun leigubíls.

„Aðspurð um samskipti sín við brotaþola í gegnum tíðina kvað vitnið að þau hefðu verið alls konar, en í seinni tíð hefðu þau því miður ekki verið mikil. Ástæðu þess kvað vitnið vera erfið samskipti og lygar, sem væru ekki bara frá brotaþola heldur væri þeim einnig stýrt af móður brotaþola.“

Gagnrýna rannsókn lögreglu

Í dómi Héraðsdóms er rannsókn lögreglu jafnframt gagnrýnd og segir dómari hana hafa verið nokkuð ábótavant. Til að mynda hafi einungis verið tekin formleg skýrsla af ákærða, stúlkunni og móður hennar á rannsóknarstigi.

Aðrar skýrslur hafi einungis verið stuttar símaskýrslur og raunar voru einungis teknar skýrslur af þremur vitnum, auk stúlkunnar og móður hennar, þótt ljóst hefði verið að fjöldi vitna hefði verið í veislunni.

„Þá var látið við það sitja að reyna tvisvar til þrisvar sinnum að ná í vitnin D og C í síma í ágúst 2022, en ekki gerðar frekari tilraunir til að taka skýrslu af þeim þrátt fyrir að framburður brotaþola hafi gefið fullt tilefni til þess.“

Dómari bendir jafnframt á að lögreglan hefði ekki reynt að finna vitni að því sem átti sér stað á dansgólfinu, utan bróður og brotaþola, þótt fullt tilefni hefði verið til þess.

„Þá var að mati dómsins tilefni fyrir lögreglu að kalla eftir frekari skýringum frá brotaþola og eftir atvikum vitnum eftir að skýrsla ákærða lá fyrir og sakargiftir höfðu verið undir hann bornar, enda ber lögreglu að leitast við að upplýsa um huglæga afstöðu sem bjó að baki meintu broti kærða.“

Umfjöllun Frosta Logasonar í hlaðvarpsþættinum Harmagddon má sjá hér að neðan en til að sjá allan þáttinn þarf áskrift að Brotkast.is

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing