Samtökin 78 og jafnræðisregla stjórnarskrárinnar

Guðný Guðmundsdóttir skrifar:

Hópurinn Drenglyndi á Akureyri samanstendur af foreldrum leik- og grunnskólabarna og kennurum. Markmið hópsins er að vekja athygli bæjarstjórnarmanna, foreldra og kennara á þeim mismunun sem börn í skólakerfinu verða fyrir á Akureyri með samningi sveitarfélagsins við lífsskoðunarfélagið Samtökin 78.

Samningurinn

Kveðið er á um að lífsskoðunarfélagið fái umboð bæjarins til að fræða börn um mjög umdeilda hugmyndafræði sem byggist á einhverju sem fer þvert á líffræðina og lífsgildi margra.

Auglýsing

Vert er að athuga að Drenglyndi álítur það yfir allan vafa hafið að meðlimir Samtaka 78 eru ekki faglærðir eða löglega viðurkenndir á sviði kyn- og kynjafræðikennslu barna og framsal verkefnisins samkvæmt samningi og valds til þeirra því ólöglegt. Jafnvel þótt svo væri, að lögmætri fagþekkingu og réttindum væri fyrir að fara, skipti það heldur ekki máli því lög um hugmyndafræðina á vettvangi grunnskóla á sér enga lagastoð

Í samningi bæjarins stendur að um vandaða fræðslu sé að ræða, byggða á gagnreyndum aðferðum og nýjustu rannsóknum. Ekki verður sé að hvorugt standist þegar betur er að gáð. Þeir bæjarfulltrúar sem samþykktu fræðsluna hafa vonandi, barnanna vegna, farið vel yfir gagnreyndu aðferðirnar og nýjustu rannsóknir.

Fræðslan

Fræðslan er tíð, farið er í þrjá árganga 3ja, sjötta og 9. bekk. Að auki er fræðsla til allra starfsmanna bæjarins og íþróttafélaga. Fræðslan er um kvilla sem börn glíma hugsanlega við sem hefur hvorki stoð í raunveruleikann, gagnreyndar aðferðir né vísindum. Verið að bera á borð eitthvað sem er runnið undan rifjum trans-hugmyndafræðinnar víða um heim.

Drenglyndi gerir sér fulla grein fyrir að samkvæmt Aðalnámskrá á að kenna börnum um efni sem kemur fyrir í hugmyndafræðinni, en hvergi stendur að hagsmuna- og lífsskoðunarfélag eigi að sjá um það frekar en hagsmunafélög trúarbragða eigi að sjá um trúarfræðslu. Og, ekki bara að sjá um ,,fræðsluna“, heldur fær greiddar háar fjárhæðir fyrir úr sjóðum bæjarins og ferðakostnað.

Skólakerfið hefur á að skipa kennurum sem geta séð um þessa fræðslu og þeir ættu að vera hófsamir í áróðri inni í kennslustofunni, í orði og á borði. Kyndugar hugmyndir jaðarhóps fullorðinna um kyn og kynvitund eiga ekkert erindi í heilbrigt skólastarf.

Í ljósi laga um grunnskóla, barnaverndarlaga og laga um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, má álíta yfir allan vafa hafið að sú fræðslustarfsemi Samtakan 78 sem ráð er fyrir gert, með tilvitnuðum starfssamningi við Akureyri, telst ekki samræmast lögum viðvíkjandi grunnskólabörnum.

Sannleikurinn ekki alltaf sagður

Á köflum eru börnum sögð ósannindi í skólanum þar sem krafa er um að gagnreynt efni, sannindi, vísindi og staðreyndir, en það virðast litlu máli skipta þegar þessi hugmyndafræði er uppi á borðum.

Börnum er sagt að það sé hægt að skipta um kyn, að sum hafi fæðst í röngum líkama og að foreldrar hafi getið sér til um kyn þeirra við fæðingu. Kyn geti verið fljótandi o.s.frv. Þetta er helsta inntak hugmyndafræðinnar.

Geta fötluð börn skipt um líkama af því þeim líkar ekki sinn eigin? Fæddust þau í röngum líkama?

Geta börn sem glíma við offitu skipt um líkama af því þeim líkar ekki sinn eigin?

Geta börn alið á andúð við foreldra af því þau völdu rangt kyn fyrir þau, þrátt fyrir líffræðilegan veruleika, af því þeim var sagt það í skólanum?

Fræðslan um afar umdeilda hugmyndafræði, fræðsla um að kyn sé róf milli karls og konu og hver og einn finni sitt eigið kyn. Samkvæmt staðreyndum, rannsóknum og vísindum eru kynin tvö, og svo geta fæðst einstaklingar með einstaka fæðingar- og erfðagalla þar sem erfitt er að sjá kynið. Konur eru kvenkyn, karlar eru karlkyn.

Víða er vandi

Mun algengara er að barn búi hjá foreldri sem glímir við geðrænan vanda heldur en að barn finni fyrir ónotum í eigin líkama. Sama með barn sem þjáist af kvíða. Akureyrarbær hefur ekki séð ástæðu til að kaupa þjónustu inn í bekki, eða til starfsmanna leik- og grunnskóla til þriggja ára til að fræða um afleiðingar, aðstöðu og líðan þessara barna. Heldur ekki barna sem glíma við offitu, einhverfu, eða átröskun. Mismunun af verstu tegund.

Hér er bæði til að líta 12. gr. grunnskólalaga sem og 2. gr. reglugerðar nr. 140/2011 þar sem viðmið um m.a. jafnræði og hlutlægni birtast eða býr þar bersýnilega að baki. Þess er að geta, að tilbrigðin viðvíkjandi heilsufari, þroska og ástandi barna á vettvangi grunnskólans eru af margvíslegum og mismunandi toga.

Jafnræðisreglan er brotin en hún birtist í 65.gr. stjórnarskrárinnar og hefur grundvallar réttarheimild og undirstöðugildi m.a. viðvíkjandi athöfnum og ákvörðunum á vettvangi opinberrar stjórnsýslu, þar með talið vegna gerðar og gildis samninga af mismunandi meiði.

Lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 er sett skör hærra en önnur félög sem ættu vissulega rétt á sér inni í skólakerfinu eins og umrætt lífsskoðunarfélag. Af hverju þessi mismunun þrátt fyrir sömu ákvæði í Aðalnámskrá grunnskóla um fræðslu!

Meðalhófsreglan hefur lengi verið gildandi í allri opinberri stjórnsýslu, sbr. þá meginreglu sem 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 byggir á og hefur mun víðtækar gildissvið en stjórnsýslulögin sem slík og út af fyrir sig. Hún gildir eins og aðrar grundvallarreglur stjórnsýslu- og sveitarstjórnarréttar um allar ákvarðanir og athafnir í opinberri stjórnsýslu, þar með talið vegna samningagerðar.

Það er áskorun til bæjarins frá hópnum Drenglyndi að látið verði af þessari mismunun í garð skólabarna á Akureyri og samningi við lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 verði sagt upp.

F.h. Drenglyndi, Guðný Guðmundsdóttir

Greinin var send bæjarblöðin á Akureyri, þau eru Akueryri.net og Vikublaðið, með ósk um birtingu í heimabyggð. Hvorugt blaðið birti greinina.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing