Saudi Arabía hyggst reisa knattspyrnuvöll 350 metra yfir jörðu sem hluta af hinni metnaðarfullu NEOM-framtíðarborg.
Völlurinn, sem gengur undir vinnuheitinu NEOM Sky Stadium, verður samkvæmt fréttum fyrsti „himnavöllur“ heimsins og mun rúma 46 þúsund áhorfendur.
Fyrsti „himnavöllur“ heimsins
Bygging vallarins á að hefjast árið 2027 og ljúka fyrir árið 2032, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2034, sem Saudi Arabía hefur þegar fengið heimild til að halda.
Völlurinn verður knúinn með sólarorku og vindi og er sagður hluti af stærri framtíðarsýn landsins um sjálfbærni og nýsköpun í íþróttamannvirkjum.
Samkvæmt tímaritinu Construction Review verður völlurinn hluti af The Line, línulaga borg sem á að mynda kjarnann í NEOM-svæðinu. Þar er áhersla lögð á hátæknilega hönnun, græna orku og vistvæna byggingu.
Mikil tækniáskorun
FIFA hefur veitt verkefninu bráðabirgðasamþykki og lofað áherslu á umhverfisvæna tækni.
Verkefnið stendur þó frammi fyrir gríðarlegum verkfræðilegum áskorunum vegna hæðar og aðgengis.
Skipulagið gerir ráð fyrir að völlurinn verði í nágrenni við heilsu- og velferðarhverfi og háskóla innan NEOM-borgarinnar.
Áætlað að hýsa leiki HM 2034
Arab News greindi áður frá því að Saudi Arabía hyggist reisa alls 15 nýja velli í tengslum við HM 2034.
Stærstur þeirra verður King Salman-leikvangurinn í Riyadh, sem tekur tæplega 93 þúsund manns og á að ljúka árið 2029.
Þrátt fyrir seinkun á öðrum hlutum NEOM-verkefnisins, sem átti upphaflega að klárast árið 2039, virðist áherslan nú lögð á að ljúka Sky Stadium tímanlega fyrir heimsmeistaramótið.
Blendin viðbrögð á samfélagsmiðlum
Viðbrögðin á samfélagsmiðlum eru blendin.
Margir dást að hugmyndinni og kalla hana byltingarkennda framtíðarsýn, en aðrir efast um burðarþol og öryggi mannvirkisins.
Verkefnið er hluti af Vision 2030 framtíðarsýn Saudi Arabíu sem miðar að því að draga úr olíuþörf efnahagslífsins og efla ferðaþjónustu og nýsköpun.
🚨 Saudi Arabia is set to construct the world’s first „sky stadium”. 🏟️
It will be suspended 1,150 feet above the ground, the venue is expected to open around 2032 and will host matches for the 2034 FIFA World Cup. 🇸🇦
— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) October 27, 2025