Segir Evrópu stefna í samfélagslegt sjálfsmorð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var gestur Frosta Logasonar í Spjallinu þar sem hann fór ófögrum orðum um stöðu Evrópusambandsins. Að hans mati stefnir Evrópa í alvarlegt efnahagslegt og samfélagslegt hrun vegna ósjálfbærrar stefnu í velferðarmálum, fólksflutningum og regluvæðingu atvinnulífsins.

Í þættinum ræðir Sigmundur meðal annars um stöðu Frakklands, vaxandi skuldir ríkja innan Evrópusambandsins og þá þróun að velferðarkerfi séu rekin langt umfram það sem þau þola í raun.

Velferðarkerfi sem ekki standast skoðun

Auglýsing

Í umræðunni ræða þeir Sigmundur og Frosti að Evrópa sé aðeins um 10 prósent af mannkyninu og framleiði um 14 prósent af allri heimsframleiðslu, en greiði samt út um 60 prósent af öllum velferðargreiðslum á jörðinni. Sigmundur segir þessa stöðu augljóslega ósjálfbæra.

Að hans mati blasir við að velferðarkerfi margra Evrópuríkja séu í raun gjaldþrota, þar sem lífeyrir og heilbrigðisþjónusta séu að mestu fjármögnuð beint úr skatttekjum fremur en uppsöfnuðum sjóðum.

Líkir innflutningi vinnuafls við píramídasvindl

Sigmundur gagnrýnir einnig þá stefnu að bregðast við lágri fæðingartíðni með auknum innflutningi á fólki. Hann líkir efnahagsstjórnun Evrópusambandsins við píramídasvindl þar sem stöðugt þurfi að bæta við fleiri til að halda kerfinu gangandi.

„Þetta er allt pýramídasvindl,“ segir Sigmundur og bætir við að þegar kerfið byrji að hrynja sé reynt að stækka það enn frekar í stað þess að taka á undirliggjandi vandamálum.

Hann telur að þessi nálgun skapi aðeins vaxtartölur til skamms tíma en leysi ekki raunverulegan skort á verðmætasköpun.

Hrun iðnaðar og orkuskortur

Sigmundur tekur Þýskaland sem dæmi um afleiðingar stefnunnar. Hann segir að þar sé orðið nær ómögulegt að byggja nýjar verksmiðjur vegna orkuskorts, hás orkuverðs og sífellt flóknara regluverks. Afleiðingin sé að iðnaður flytjist úr landi og verðmætasköpun dragist saman.

Að hans mati er Evrópa sjálf að grafa undan samkeppnishæfni sinni með því að leggja auknar byrðar á atvinnulíf á sama tíma og samfélögin eldast hratt.

Gagnrýnendum ýtt til hliðar

Í þættinum ræðir Sigmundur einnig pólitískt andrúmsloft í Evrópu og segir að stjórnmálamenn sem gagnrýni þróunina séu oft stimplaðir sem öfgamenn og útilokaðir frá samstarfi, jafnvel þótt þeir njóti verulegs fylgis.

Hann telur þetta grafa undan lýðræðinu og stuðla að því að vandamál séu ekki tekin föstum tökum. Einnig segir hann að samspil lágrar fæðingartíðni, innflutnings vinnuafls, hnignandi iðnaðar og félagslegrar upplausnar leiði Evrópu í ranga átt.

„Þetta er samfélagslegt sjálfsmorð“

Sigmundur segir þróunina jafngilda samfélagslegu sjálfsmorði, þar sem grunnstoðir samfélagsins séu veiktar samtímis á mörgum sviðum.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing