Segir fyrirsögn um fækkun útlendinga aðeins segja hálfa söguna

Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, segir mikilvægt samhengi vanta í frétt Vísis undir fyrirsögninni „Útlendingum fækkað það sem af er ári“.

Þótt erlendum ríkisborgurum hafi fækkað um 519 frá desember skýrist fækkunin meira en öll af tveimur fjölmennum hópum. Pólskum og litháískum ríkisborgurum fækkaði samtals um 1.192 á tímabilinu. Öðrum erlendum ríkisborgurum fjölgaði því samanlagt um 673.

Auglýsing

„Hér vantar samhengi og jafnvel er verið að slá ryki í augu almennings,“ segir Einar.

Pólverjum og Litháum fækkaði um 1.192

Alls fækkaði pólskum ríkisborgurum um 635 frá 1. desember 2025 til 1. september 2026. Þeir voru 26.612 í desember en 25.977 í september.

Litháískum ríkisborgurum fækkaði á sama tíma um 557, úr 6.317 í 5.760.

Einar segir fækkun þessara tveggja hópa að miklu leyti skýrast af frosti á byggingarmarkaði og versnandi efnahagshorfum.

Þjóðskrá tekur þó fram að sérstakt átaksverkefni við að uppfæra lögheimilisskráningar geti einnig haft áhrif á skráðan fjölda erlendra ríkisborgara og samanburð milli tímabila.

Völdum hópum fjölgaði um 347

Einar tekur sérstaklega saman ríkisborgara Úkraínu og níu MENAPT ríkja sem hann segir vera meðal helstu upprunalanda hælisleitenda.

Löndin eru Afganistan, Egyptaland, Írak, Íran, Marokkó, Pakistan, Palestína, Sýrland og Tyrkland, auk Úkraínu.

Ríkisborgurum þessara landa fjölgaði samtals um 347 frá desember og voru þeir 9.164 í september. Árið 2019 voru þeir 1.281 og hefur þeim því fjölgað um 7.883 frá þeim tíma.

Mest munar um Úkraínumenn, sem fjölgaði um 250 frá desember. Tyrkneskum ríkisborgurum fjölgaði um 71, pakistönskum um 44, palestínskum um 21 og afgönskum um 19. Á móti fækkaði ríkisborgurum nokkurra hinna landanna.

Í frétt Vísis kemur fram að auk Úkraínumanna hafi spænskum ríkisborgurum fjölgað um 180 og nígerískum um 85.

Fjöldi nýrra Íslendinga ekki tilgreindur

Einar bendir einnig á að tölurnar byggist á ríkisfangi en ekki uppruna fólks.

Á sama tíma og erlendum ríkisborgurum fækkaði um 519 fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 2.405. Erlendur íbúi hverfur úr fyrri flokknum og færist yfir í þann síðari þegar hann fær íslenskan ríkisborgararétt, þótt viðkomandi búi áfram í landinu.

„Þá kemur ekki fram hversu stór hluti fjölgunar íslenskra ríkisborgara, og fækkunar erlendra ríkisborgara, skýrist af því að erlendir íbúar hafa fengið íslenskt ríkisfang á þessu tímabili,“ segir Einar.

Tilkynning Þjóðskrár tilgreinir ekki hversu stór hluti breytingarinnar skýrist með þeim hætti.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing