Ingibjörg Einarsdóttir segir ótrúlega breytingu hafa orðið á 15 ára syni sínum á meðferðarheimilinu Healing Wings í Suður-Afríku. Drengurinn fór þangað eftir langa baráttu við alvarlegan vímuefnavanda og árangurslausar meðferðir á Íslandi.
Samkvæmt Ingibjörgu er breytingin sé orðin svo mikil að hún óttaðist að henni yrði ekki trúað. Hún óskaði því eftir því að sonur hennar fengi að ræða við barnaverndarfulltrúa sem þekkti til málsins.
Fékk gæsahúð og varð orðlaus
Að sögn Ingibjargar varð barnaverndarfulltrúinn orðlaus þegar hún ræddi við drenginn.
„Barnaverndarfulltrúinn sagðist bara hafa fengið gæsahúð og verið kjaftstopp og að hún hefði aldrei séð svona breytingu á barni í íslenska „kerfinu“,“ skrifar Ingibjörg.
Hún segir allt annan dreng hafa tekið á móti fulltrúanum en þann sem fór frá Íslandi.
„Við henni tók einstaklingur sem hafði þroskast ólýsanlega mikið, var algjörlega á jörðinni, kurteis, með innsæi og metnað fyrir framtíð sinni.“
Strauk ítrekað úr úrræðum á Íslandi
Ingibjörg fór með son sinn til Suður-Afríku í október á síðasta ári. Hún hafði þá lýst því í fjölmiðlum að hann hefði verið í meðferðarúrræðum á vegum íslenskra yfirvalda í um sjö mánuði án þess að nokkur fíkniefnapróf sem hann hafi tekið hefði reynst hreint.
Hún sagði hann hafa strokið um 30 sinnum úr úrræðunum og ítrekað komist í vímuefni. Staðan hefði á köflum verið lífshættuleg og hún meðal annars komið að honum meðvitundarlausum.
Á Healing Wings er meðferð samhliða skólastarfi. Samkvæmt upplýsingum heimilisins fá ungmennin meðal annars einstaklingsviðtöl, hópmeðferð, fræðslu um fíkn, lífsleiknikennslu og skipulagða hreyfingu.
Ingibjörg segir syni sínum líða svo vel á heimilinu að ekkert bendi til þess að hann sé á leiðinni aftur til Íslands á næstunni.
„Besta ákvörðun sem ég hef tekið“
Ingibjörg segist í upphafi hafa talið ákvörðunina um að senda son sinn alla leið til Suður-Afríku nær galna. Nú sé hún farin að líta hana allt öðrum augum.
„Ég er ekki frá því að þessi ákvörðun, sem var svo galin í upphafi, sé sú allra besta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni,“ skrifar hún.
Reynslan hafi einnig gjörbreytt sýn hennar á íslenska meðferðarkerfið og samanburðinn við þau úrræði sem sonurinn fær í Suður-Afríku.
Ingibjörg stefnir á að heimsækja son sinn í október og segist varla geta beðið eftir að fá að knúsa hann.
„Barnið hefur þroskast um mörg ár þarna á nokkrum mánuðum. Ég get ekki beðið eftir því að geta knúsað hann. Suður-Afríka mun alla tíð eiga sérstakan stað í mínu hjarta eftir þetta.“