Segist hafa verið sakborningur í 2.002 daga án ákæru – Sumar ákærur frá því áður en hún hóf störf

Arna McClure hefur verið með stöðu sakbornings í 2.002 daga án þess að hafa verið ákærð eða sakfelld.

Þetta kemur fram í færslu sem hún birti á Facebook þar sem hún gagnrýnir harðlega málsmeðferð yfirvalda í svokölluðu Namibíumáli og segir ferlið hafa haft víðtæk áhrif á líf sitt og starfsferil.

Auglýsing

Að sögn Örnu hefur ástandið staðið yfir á sjötta ár og nemur um þriðjungi af starfsævi hennar til þessa.

Hún segir stöðuna hafa litað allar ákvarðanir hennar, möguleika og daglegt líf.

Gagnrýnir framgöngu sérstaks saksóknara

Í færslunni beinir Arna gagnrýni sinni sérstaklega að Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, og segir hann ítrekað hafa stigið fram í fjölmiðlum með yfirlýsingar um málið.

Hún nefnir sérstaklega viðtal sem birtist á afmælisdegi hennar 2. júlí, þar sem talað var um „áfanga“ og „kaflaskil“ í rannsókninni.

Arna hafnar þeirri lýsingu og segir að engin raunveruleg kaflaskil hafi orðið, þar sem sami aðili hafi stýrt rannsókninni frá upphafi og ætli nú jafnframt að taka ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út.

Segir sama aðila hafa stýrt öllu ferlinu

Arna segir að Ólafur Þór hafi sjálfur lagt áherslu á það fyrir dómstólum árið 2024 að hann hefði stýrt rannsókninni frá upphafi til enda, þar á meðal tekið allar meiriháttar ákvarðanir og farið til Namibíu vegna rannsóknarinnar.

Hún segist í tvígang hafa reynt að losna frá málinu og bent á að ekkert bendi til þess að hún hafi brotið af sér.

Þeim beiðnum hafi verið hafnað.

Hún nefnir meðal annars að henni hafi verið gert að sæta ásökunum tengdum atvikum sem áttu sér stað áður en hún hóf störf hjá Samherja.

Skattamál sagt byggjast á röngum forsendum

Í færslunni fjallar Arna einnig um skattamál sem tengist Namibíumálinu og segir þar hafa komið fram mynstur valdníðslu og rangra fullyrðinga.

Hún bendir á að skattrannsókn hafi verið boðuð daginn eftir sýningu Kveiksþáttar í nóvember 2019, þar sem fullyrt var að gögn hefðu borist frá namibískum yfirvöldum.

Að hennar sögn kom síðar í ljós að gögnin hefðu ekki komið frá slíkum yfirvöldum heldur verið stolin bankagögn frá DNB í Noregi.

Hún segir fullyrðingar um uppruna gagnanna hafa verið rangar og notaðar til að réttlæta aukið fjármagn til rannsóknarinnar.

Bætt við sem sakborningi vegna atvika fyrir ráðningu

Arna segir að í sama skattamáli hafi hún verið gerð að sakborningi vegna skattskila Samherja frá árinu 2010, þrátt fyrir að hún hafi ekki hafið störf hjá fyrirtækinu fyrr en þremur árum síðar.

Hún var boðuð í skýrslutöku með þriggja mánaða fyrirvara og segir málið síðar hafa horfið án skýringa.

Hún segist hafa ítrekað óskað eftir rökstuðningi fyrir þessari meðferð og að lokum leitað til ríkissaksóknara.

Að hennar sögn kom fram í svari Skattsins að ekkert lægi fyrir sem benti til þess að hún hefði brotið af sér, en það væri engu að síður ekki talið nægilegt til að útiloka slíkt.

Segir réttarríkið hafa brugðist

Arna segir að réttarríki snúist ekki eingöngu um endanlega niðurstöðu mála heldur einnig um málsmeðferð, meðalhóf og ábyrgð gagnvart einstaklingum á meðan rannsókn stendur yfir.

Hún lýsir ástandinu sem raunverulegu álagi og segir langdregið ferli hafa orðið að refsingu í sjálfu sér.

Hún gagnrýnir að kerfið beri enga raunverulega ábyrgð á afleiðingum slíkra mála fyrir einstaklinga, þrátt fyrir mikinn kostnað og álag.

Að hennar mati hafi hundruðir milljóna króna, jafnvel milljarðar, farið í rannsóknir og málarekstur, á meðan sakborningar sitji árum saman í óvissu.

Vonast til að málinu ljúki

Að lokum segist Arna vona að hún þurfi ekki að skrifa aðra slíka færslu eftir næsta afmæli sitt í júlí. Hún segir nóg komið af því sem hún lýsir sem grátlegum farsa og krefst þess að málinu verði lokið.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing