Skelfilegt mál innan neyðarmóttöku barna í Ceuta – Marokkóskur maður réðist á og misnotaði að minnsta kosti þrjú börn

Landslögregla Spánar hefur handtekið marokkóskan mann vegna gruns um kynferðisárásir á að minnsta kosti þrjú börn, aðeins tíu og ellefu ára, í móttökumiðstöð fyrir fylgdarlaus börn í Ceuta.

Börnin komu sjálf yfir landamærin frá Marokkó í innrásinni í lok júlí og hafði verið komið fyrir í neyðarmóttökunni.

Ekkert lát á hryllingsástandinu í Ceuta – 12 ára stúlku bjargað úr höndum fimm manna sem reyndu að hópnauðga henni

Auglýsing

Ósamræmi um fjölda barnanna

Spænskum miðlum ber ekki saman um fjölda og kyn barnanna.

RTVE, ABC og fleiri miðlar segja að þrjú börn hafi orðið fyrir árásum. El Mundo segir þau hins vegar hafa verið fjögur, tvo drengi og tvær stúlkur. Öll eru sögð tíu eða ellefu ára.

Sérstök fjölskyldu- og kynferðisbrotadeild lögreglunnar rannsakar málið og kannar hvort ráðist hafi verið á fleiri börn í miðstöðinni.

Grunaði sagður hafa verið barinn

Frásagnir af því hvernig málið komst upp eru einnig ósamhljóða.

Samkvæmt El Mundo urðu aðrir innflytjendur í miðstöðinni varir við brotin, létu lögreglu vita og réðust á piltinn áður en hún kom á staðinn. Libertad Digital segir hins vegar að starfsmaður hafi staðið hann að verki og kallað eftir aðstoð.

Ástandið í Ceuta er skelfilegt og er ofbeldi og kynferðisofbeldi daglegt brauð en þúsundir manna eru ennþá í borginni.

Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni

Tugþúsundir mótmæltu um allan Spán

Tugþúsundir manna tóku þátt í mótmælum vegna ástandsins í Ceuta víða um Spán. Boðað var til mótmæla í meira en 260 borgum og bæjum þar sem krafist var aðgerða og stjórnvöld sökuð um að hafa brugðist íbúum Ceuta.

Ein þeirra fór fram í Elche, þar sem þúsundir manna komu saman. Blaðamaður Nútímans var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir og myndskeið.

Í myndskeiðinu heyrist mannfjöldinn ítrekað kyrja: „Pedro Sánchez, hijo de puta,“ sem þýða má sem „Pedro Sánchez, hórusonur“.

Slagorðið er langt frá því að vera bundið við mótmælin vegna Ceuta. Stórir hópar kyrja það nú reglulega á fjölmennum tónleikum, íþróttaviðburðum, bæjarhátíðum og öðrum stórum samkomum víða um land.

default

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing