Í kjölfar mikilla vinsælda Netflix-seríunnar Adolescence, þar sem 13 ára drengur drepur kvenkyns samnemanda sinn, hefur breska ríkisstjórnin ákveðið að innleiða fræðslu í skólum sem beinist gegn kvenfyrirlitningu og svokallaðri eitruðri karlmennsku.
Kennslan verður hluti af nýjum viðmiðum í kynfræðslu, heilbrigðis- og samskiptafræðslu (RHSE), sem á að taka gildi áður en skólaárinu lýkur.
Þættirnir, sem fjalla um Miller fjölskylduna og afleiðingar þess þegar sonur þeirra, Jamie, er handtekinn fyrir morð, hafa vakið mikla umræðu um áhrif samfélagsmiðla og áhrifavalda á unglingsdrengi.
Forsætisráðherrann vill beita sér fyrir útbreiðslu
Sir Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði nýlega á samfélagsmiðlum að hann hefði horft á þættina með börnum sínum og vildi leggja sitt af mörkum svo þeir verði sýndir bæði í skólum og á þingi.
Að sögn heimildarmanna mun nýja kennslan leggja áherslu á að styðja við heilbrigð sambönd, sporna gegn skaðlegri hegðun og útrýma kvenfyrirlitningu, en óvíst hvernig það mun vera öðruvísi en sú námskrá sem fyrir er.
Frá grunnskólaaldri verður börnum kennt að setja mörk, sýna samkennd og skilja eigin og annarra þarfir.
Í framhaldsskólum mun námsefnið einnig fjalla um siðfræði, samskipti, samþykki og áhrif klám- og netefnis á kynhegðun og viðhorf.
Höfundarnir að vonum ánægðir
Höfundar þáttarins Adolescence, Jack Thorne og Stephen Graham (sem einnig leikur föður Jamie), hafa lýst ánægju sinni með að þættirnir hvetji til umræðu og valdi breytingum.
Foreldrar stúlku sem lifði af hnífaárásina í Southport lofuðu þættina fyrir að varpa ljósi á hættuna sem fylgir kvenfyrirlitningu.
Menntamálaráðherra, Bridget Phillips, vinnur nú að því að endurskoða leiðbeiningar frá fyrri ríkisstjórn, sem m.a. bönnuðu kynfræðslu fyrir börn undir níu ára aldri og umfjöllun um kynvitund.
Umræðan um áhrif karlrembu og kvenfyrirlitningar á ungt fólk er nú orðin að lykilatriði í menntastefnu Breta – og Adolescence virðist hafa verið upptakan að þeirri vakningu, eða afsökunin til að hverfa aftur til fyrri stefnu.
Fleiri stefnur byggðar á sjónvarpsþáttum?
Starmer hefur þurft að þola mikið háð á samfélagsmiðlum fyrir að segjast ætla að nota sjónvarpsþætti til að móta stefnu stjórnarinnar í menntamálum, en einn netverji grínaðist með að næst á dagskrá myndi stjórnin setja í forgang að taka á faraldri efnafræðikennara sem byrja að framleiða fíkniefna eftir að þeir fá krabbamein.
The challenges raised by Adolescence aren’t something we can simply legislate for — if I could pull a lever to solve it, I would.
It’s only by listening and learning from the experiences of young people and charities that we can tackle this.
That’s what I’ve been doing today. pic.twitter.com/bU5ocwpa1T
— Keir Starmer (@Keir_Starmer) March 31, 2025