Charlie Kirk, 31 árs faðir, íhaldsrýnir og stofnandi hreyfingarinnar Turning Point USA, var skotinn til bana nú fyrir stundu þegar hann flutti ræðu á opnum viðburði við Utah Valley University í Orem. Hann var skotinn í hálsinn fyrir framan fjölda áhorfenda og er sagður hafa látist skömmu síðar af sárum sínum. Af mjög grafískum myndböndum sem voru í umferð á fyrstu mínútum atviksins var nokkuð ljóst að hann hafi látist nær samstundis.
Morðið þykir sérstaklega hryllilegt þegar haft er í huga að Charlie Kirk – fremur en nokkur annar í Bandaríkjunum, hvort sem litið er til hægri eða vinstri – byggði upp sinn vettvang á heiðarlegri viðleitni til að skapa gott fordæmi um málefnalega pólitíska umræðu og rökræður á opinberum vettvangi.
Allt hans starf snérist um að brúa bilið milli ólíkra viðhorfa með því að beita orðum, fremur en ofbeldi, til að takast á við og leysa úr ágreiningsmálum.
Lofaður og hataður íhaldsmaður
Kirk var einn þekktasti talsmaður ungra íhaldsmanna í Bandaríkjunum. Hann stofnaði Turning Point USA aðeins 18 ára gamall og byggði hana upp sem eina áhrifamestu íhaldsrödd háskólasamfélagsins. Hann varð landsþekktur fyrir að stilla sér upp sem gagnrýnanda hinnar andstyggilegu „woke-menningar“ og studdi Donald Trump af miklum eldmóð. Hann átti sjálfur tryggan hóp stuðningsmanna – og stóran hóp andstæðinga, oftar en ekki af vinstri væng stjórnmálanna, svokallaðra frjálslyndra vinstrimanna sem áttu erfitt með að rökræða við hann.

Panik greip um sig í salnum
Samkvæmt vitnum var augnablikið eftir skotið eins og tekið úr hryllingsmynd. „Það var eins og gosbrunnur af blóði,“ sagði Sophie Anderson við DailyMail. Hún og aðrir nemendur hlupu í örvæntingu út úr salnum á meðan aðrir földu sig undir borðum. Háskólasvæðið var lokað strax eftir atvikið og öryggissveitir kallaðar út. Margir nemendur fengu áfallahjálp á staðnum.
Skot úr fjarlægð
Lögreglan telur að árásarmaðurinn hafi skotið af þaki Losee Center, um 130 metra frá vettvangi. Fyrst var einn maður handtekinn, en honum var síðar sleppt þegar ljóst varð að hann var rangur aðili. Skotmaðurinn er því enn ófundinn og umfangsmikil rannsókn stendur yfir.
Trump kallar eftir bænum
Donald Trump lýsti Kirk sem „píslavotti“ og sagðist syrgja vin sinn. „Charlie gaf líf sitt fyrir sannleikann,“ sagði hann í yfirlýsingu. Fjölmargir íhaldsmenn tóku í sama streng á samfélagsmiðlum og lýstu áfalli yfir morðinu. Þeir líta á hann sem fórnarlamb pólitísks haturs.

Deilur um orðræðuna
Kirk var umdeildur fyrir beitta gagnrýni sína á frjálslynda menningu og þá einnig fyrir það eitt að vera leiðandi innan Trump-hreyfingarinnar. Stuðningsmenn hans sáu hann sem rödd ungra íhaldsmanna sem þorði að segja það sem aðrir þögðu um. Gagnrýnendur töldu hann hins vegar ýta undir sundrung og skapa eldfima stemningu á háskólasvæðum. Fyrir þá sem horft hafa á hundruði klukkutíma af upptökum af honum í þessum háskólarökræðum er hinsvegar erfitt að taka undir það. Dauði hans hefur nú endurvakið umræðuna um pólitískt ofbeldi í Bandaríkjunum.
Þjóð í áfalli
Morðið á Charlie Kirk hefur vakið mikla athygli í bandarískum fjölmiðlum og orðið eldfimt umræðuefni í bandarískri stjórnmálaumræðu. Var árásin pólitísk? Eða verk manns sem vildi einfaldlega sá ótta og ringulreið? Þá hefur verið bent á að vinstrisinnaðir meginstraumsmiðlar, ásamt stjórnmálamönnum á borð við Gavin Newsom sem hafa haldið því fram að Trump ætli sér að verða einræðisherra, hafi skapað andrúmsloft ofsahræðslu gagnvart hægri sinnuðum einstaklingum. Slíkt geti hafa hvatt óstöðuga einstaklinga til að grípa til pólitísks ofbeldis.
Bandaríkin standa nú frammi fyrir spurningunni um hvert pólitíska hitastigið stefnir – og hvort skotið í Utah sé fyrirboði þess sem koma skal.