Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega núverandi skipulag fæðingarorlofs og afstöðu ríkisstjórnarinnar til þess, í pistli sem hann birtir opinberlega í dag.
Þar fullyrðir hann að ríkisvaldið hafi tekið sér umboð til að ákveða hvernig fjölskyldur í landinu eigi að haga sínu lífi og telur slíkt skerða frelsi foreldra með óþarflegum hætti.
„Að sjálfsögðu eiga foreldrar að fá að ákveða alveg sjálfir hvernig þeir ráðstafa fæðingarorlofsréttinum,“ skrifar Snorri og segir þetta mikilvægt efnahagsmál sem geti haft áhrif á barneignaráform fólks.
Vísar í óvæntan stuðning Ingu Sæland
Snorri bendir á að Inga Sæland, félags- og vinnumálaráðherra og formaður Flokks fólksins, hafi nýverið lýst yfir stuðningi við sjónarmið sem Miðflokkurinn hafi áður flutt á Alþingi, þótt hún hafi ekki mætt í þingsal þegar málið var þar til umræðu.
„Það kemur á óvart í ljósi þess að fulltrúar ríkisstjórnarinnar í þingsal þennan dag voru Samfylkingarmenn, sem komu því rækilega á framfæri að frjáls ákvörðunarréttur almennings væri ekki í boði á þessu sviði,“ skrifar Snorri og gefur í skyn að frumvarp sé nú væntanlegt frá ráðherra Flokks fólksins um þetta efni.
„Á hvaða ári er ég eiginlega staddur?“
Í pistlinum rifjar Snorri upp orð Víðis Reynissonar þingmanns Samfylkingarinnar frá umræðum í vor, þegar hann spurði: „Á hvaða ári er ég eiginlega staddur?“
Snorri kallar þetta dæmi um grundvallarágreining milli flokka um traust til foreldra.
„Meginhugsun okkar í Miðflokknum er einfaldlega sú að foreldrum sé treystandi til þess að meta hvað er barni þeirra fyrir bestu,“ segir hann og gagnrýnir sérstaklega þingkonu Samfylkingarinnar Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir að lýsa þeirri afstöðu að ríkið viti best hvað henti börnum og fjölskyldum.
„Er þetta ekki sérstök tegund af virðingarleysi?“
Vekur Snorri athygli á því sem hann kallar aðdróttun í garð feðra: að ef þeir taki ekki fæðingarorlof samkvæmt „ákvörðunum Samfylkingarinnar“, þá njóti þeir ekki samvista við börnin sín eða sinni ekki heimilisverkum.
„Er þetta ekki einhver sérstök tegund af virðingarleysi?“ spyr Snorri að lokum.