Í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein pæling ræddi Snorri Másson um stöðu ungra karlmanna í samfélaginu og gagnrýndi hvernig þeir séu oft settir upp sem ógn ef þeir aðhyllast ekki ákveðnar pólitískar skoðanir.
„Kúgunartæki gagnvart ungum körlum“
Snorri sagði að það væri „ljótt og andstyggilegt kúgunartæki“ að líta á unga menn sem hryðjuverkaógn einungis vegna þess að þeir væru ekki vók eða vinstrisinnaðir.
„Mér finnst þetta bara ofbeldisfullt að segja þetta við unga menn, að ef þeir eru ekki woke og elska ekki kynjafræði og fjölmenningu, þá séu þeir hreinlega hryðjuverkaógn,“ sagði hann.
Gömul gildi í nýju ljósi
Að hans mati hefur orðið undarleg breyting í menningunni þar sem gömul gildi, eins og trú, þjóðerniskennd og hefðbundin samfélagsviðhorf, hafi verið útilokuð úr meginstraumshugsun.
Hann sagði þessi gildi nú vera að brjótast í gegn á ný, þrátt fyrir að þeim hafi verið stillt upp sem öfgum.
„Þegar eitthvað afturhvarf verður til þessara gilda, þá er það litið sem ógn við opna samfélagið,“ sagði Snorri.
„Að vera maður sjálfur“
Snorri hélt áfram að útskýra að margir ungir karlmenn væru farnir að hafna því að skammast sín fyrir eigin tilvist og væru í auknum mæli að sækjast eftir því að standa með sjálfum sér.
„Það skiptir engu máli hvað þú segir um mig, ég ætla bara að vera eins og ég er og segja það sem ég hugsa. Ég er ekkert að reyna að særa neinn, ég er ekkert að reyna að vera leiðinlegur, ég er bara að reyna að vera ég sjálfur,“ sagði hann um þann hugsunarhátt sem er farinn að brjótast í gegn hjá ungum karlmönnum.
Umræðan um stefnumótamenningu
Þáttastjórnandinn Þórarinn Hjartarson tók undir og sagði að konur leituðu almennt ekki eftir karlmönnum sem væru sífellt óöruggir eða undirgefnir.
Snorri bætti við að stefnumótamenningin væri einnig undir áhrifum af þessari gjá í viðhorfum.
Hann nefndi að sumir ungir karlmenn væru orðnir „blackpill-aðir“ og upplifðu misræmi milli þess sem þeir heyrðu frá frjálslyndum konum og þess sem þeir sjálfir sæju í sínum miðlum.
„Þetta verður erfiðara og erfiðara fyrir fólk að makast,“ sagði Snorri og bætti við að hugmyndin um að konur sæktu sérstaklega í „grátandi karlmenn“ væri einfaldlega röng.