Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, svarar Sigmari Guðmundssyni, þingflokksformanni Viðreisnar, fullum hálsi eftir að Sigmar sakaði hann um að berjast hatramlega gegn réttindum transfólks, hinsegin fólks og útlendinga.
Snorri segir færslu Sigmars „skemmtilega snældugalna“ og sakar hann á móti um að bera blak af pólitískri slagsíðu innan Ríkisútvarpsins.
Orðaskiptin hófust eftir að Snorri gagnrýndi útgjöld til RÚV í umræðum um fjárlagafrumvarpið á Alþingi og sagði pólitíska aktívista starfa hjá hinu opinbera.
Sigmar beindi orðunum aftur að Snorra
Sigmar tók undir að pólitískur aktívisti væri á launum hjá ríkinu en sagði þann mann starfa á Alþingi.
„Sá aktívisti vinnur á Alþingi og berst hatramlega gegn réttindum transfólks, hinsegin samfélaginu og útlendingum. Hann er með tæpar tvær milljónir á mánuði og heitir Snorri Másson,“ skrifaði Sigmar.
Snorri segir sannleikann fara illa í þingflokksformanninn og spyr jafnframt hvort það eigi að teljast móðgun við stjórnmálamann að kalla hann pólitískan aktívista.
„Það þarf kannski ekki að koma á óvart að gamall RÚV-ari geri ekki greinarmun á eðlilegu framferði fjölmiðlamanns í þeirri stöðu og alþingismanns,“ skrifar Snorri.
Segir almenning sitja uppi með „nauðungaráskrift“
Snorri segir vandann vera þann að ókjörnir starfsmenn Ríkisútvarpsins nálgist lögbundna hlutleysisskyldu sína af léttúð. Almenningur sem sé ósáttur við pólitíska slagsíðu miðilsins geti hins vegar ekki sagt upp því sem hann kallar nauðungaráskrift að RÚV.
Hann segir þessa pólitísku nálgun henta Sigmari og stjórnarliðinu og tengir afstöðu Viðreisnar til Ríkisútvarpsins við andstöðu flokksins við tillögur Miðflokksins um að skattgreiðendur fái að ráðstafa útvarpsgjaldinu til þeirra miðla sem þeir kjósa.
„Fyrir þeim lýðræðislega rétti almennings er ég stoltur aktívisti,“ segir Snorri.
„Líka fyrir ýmsu öðru: Til dæmis persónufrelsi allra Íslendinga og þar á meðal er hugsana- og tjáningarfrelsi almennings, án ofsókna frá froðufellandi Viðreisnarmönnum og þeirra sérvisku um 73 kyn mannsins.“
Hann segist einnig vera aktívisti fyrir persónufrelsi, hugsana- og tjáningarfrelsi og hagsmunum Íslendinga. Þar gagnrýnir hann bæði afstöðu Viðreisnar í kynja- og innflytjendamálum og segir Sigmar hafa barist fyrir áframhaldandi glórulausri innflytjendastefnu.
Segir ESB ósigurinn valda skapsveiflum
Snorri beinir því næst spjótum sínum að Sigmari vegna ósigurs ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið.
Hann segir ESB málið greinilega enn valda óvæntum skapsveiflum hjá þeim sem báru ábyrgð á því sem hann kallar gönuhlaup og telur nær að Viðreisn líti í eigin barm en verji Ríkisútvarpið.
Snorri endar svo færsluna á að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að ætla almenningi að herða sultarólina, greiða hærri skatta og bera háa vexti á meðan Ríkisútvarpið fái sérstaka innspýtingu í fjárlagafrumvarpinu.
„Ætli við verðum ekki að sýna því skilning. Ríkisstjórnin hefur sínar ástæður fyrir því,“ skrifar Snorri.