Þýsk Twitch stjarna varð fyrir árás á gamlársdag þegar hún var í beinni útsendingu úr miðbæ Köln.
Atvikið átti sér stað skömmu fyrir miðnætti og er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Var í beinni útsendingu þegar árásin átti sér stað
Twitch stjarnan, sem notar notendanafnið Kunshikitty og er með um 220 þúsund fylgjendur á Twitch, gekk um miðbæinn rétt fyrir miðnætti, en samkvæmt þeim sem fylgdust sem streymi hennar, var tilgangur hennar upprunalega að sanna fyrir áhorfendum sínum að miðbær Kölnar væri öruggur fyrir konur á gamlárskvöld, en það hefur verið mikið í umræðunni í ár þar sem 10 ár eru liðin frá hinum alræmdu áramótum 2015-2016 þar sem þúsundir kvenna urðu fyrir grófu kynferðisofbeldi um allt Þýskaland, þar á meðal um 600 tilfelli í Köln.
Gerendurinir voru ungir karlmenn frá Norður-Afríku, að sögn yfirvalda, en þeir umkringdu konurnar og brutu á þeim kynferðislega.
Today is the 10th anniversary of the attempted cover-up of the 2015 NYE Mass-Sexual Assaults in Cologne.
1200 women were sexually assaulted, raped or robbed in front of the Cologne Cathedral by around 2000 migrants.
European history was changed that day pic.twitter.com/8EnExsyuFn
— Visegrád 24 (@visegrad24) January 1, 2026
2015 var árið sem Þjóðverjar tóku inn um 1,1 milljón hælisleitenda og flóttamenn.
Umkringd karlmönnum
Áreitið er sagt hafa hafist næstum samstundis þegar ókunnugur aðili kastaði ókunnum hlut í höfuð hennar af stuttu færi.
Atvikið sást greinilega í útsendingunni.
Hún greip um höfuð sér og sagði að hún hefði orðið fyrir höggi.
Maðurinn sem kastaði hlutnum sást í augnablik en hvarf síðan inn í mannfjöldann.
Varð fyrir annarri árás skömmu síðar
Nokkrum mínútum síðar varð Kunshikitty aftur fyrir árás.
Þá var kastað öðrum hlut í hana, þó ekki liggi fyrir hvaða hlutur það var né hvort sami aðili hafi verið að verki í bæði skiptin.
Hún yfirgaf svæðið í kjölfarið og sagði einnig að hún hygðist kæra málið.
Hún lýsti því yfir eftir árásirnar að tilgangur hennar hafi ekkert haft með það að gera að sanna að konur væru öruggar í miðbæ borgarinnar, en það stangast á við frásagnir margra sem horfðu á beina útsendingu hennar.
Þegar blaðamaður reyndi að nálgast streymið í heild sinni var búið að taka það niður, svo ekki var hægt að sanna né afsanna fullyrðingar þess efnis.
Lögregla hefur hafið rannsókn
Lögreglan í Köln staðfesti við þýska fjölmiðla að rannsókn hafi verið hafin á grundvelli upptaka úr beinni útsendingu hennar.
Ekki hefur verið greint frá handtökum í málinu og rannsókn stendur yfir.
According to reports, this German streamer tried to prove that it’s safe for women to party with migrants on New Year’s Eve on the streets of Cologne.
As expected, it didn’t go the way she expected. pic.twitter.com/f2AVA9mQ18
— Martin Sellner (@Martin_Sellner) January 1, 2026