Sunnudaginn 6. apríl, urðu heitar umræður í þættinum Synir Egils þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason tókust harkalega á um vók-hugmyndafræðina og áhrif hennar á pólitíska umræðu.
Þátturinn, sem stýrt er af bræðrunum Sigurjóni Magnúsi og Gunnari Smára Egilssonum, tók á fjölbreyttum málefnum dagsins: ríkisfjármál, veiðigjöld, tollamál og öryggismál.
En það var einmitt umræðan um vók sem stóð upp úr, þegar árekstur hugmynda og gilda varð að beinum orðaskiptum milli gesta.
„Vók er ömurlegt“ – segir Sólveig Anna
Sólveig Anna byrjaði á því að lýsa vók-hugmyndafræðinni sem „leiðinlegu þusi“ og „einni af mest óþolandi hugmyndafræðum sem hægt er að hugsa sér“.
Hún sagði jafnframt að vinstristefnan þyrfti að vakna til vitundar um að sá tími væri liðinn að almenningur sætti sig við sjálfskipaða hugmyndalögreglu sem fylgdi vók-menningunni.
„Vók bara að vera næs við fólk,“ skaut Hallgrímur inn í en Sólveig tók þá skýringu ekki í mál og bætti við að hugmyndafræðin ætti rætur sínar í bandarískum háskólum og væri orðin að authoritarian kerfi þar sem skoðanafrelsi væri kæft.
Hallgrímur: „Þú talar eins og Trump“
Hallgrímur Helgason brást undrandi við yfirlýsingum Sólveigar. „Ég trúi ekki að ég sé að hlusta á Sólveigu Önnu tala gegn vók,“ sagði hann og líkti málflutningi hennar við Donald Trump.
Hann benti á að orðið „woke“ hefði upprunalega sprottið úr menningu blökkumanna í Bandaríkjunum sem baráttuorð gegn óréttlæti og að útilokun þess væri afneitun á réttindabaráttu minnihlutahópa.
Árekstur sjónarmiða
Sólveig svaraði fyrir sig með miklum þunga og sakaði Hallgrím um að grípa til þreytandi stimplunar.
„Þetta er hugsanaglæpurinn sem ég hef núna framið. Hann verður til þess að einhver merkilegur íslenskur rithöfundur getur kallað mig Trömpista,“ sagði hún.
Hallgrímur svaraði á móti og spurði: „Hvar er umburðarlyndið?“ en Sólveig neitaði að gefa eftir og sagði: „Horfðu í spegil, þú ert að kalla mig Trömpista fyrir það eitt að gagnrýna ákveðna anga af authoritarian hugmyndafræði.. Vók er eitt af því sem hefur ýtt latínóum, svörtum og verkafólki frá Demókrötum og yfir til einstaklings sem þúsar og röflar, af því það nennir ekki lengur að láta segja sér fyrir verkum.“
Skýr skilaboð til vinstrisins
Í lokaorðum sínum í umræðunni varaði Sólveig vinstristefnuna við því að halda áfram á braut yfirburðahyggju og pólitísks rétttrúnaðar.
Hún sagði að vinstrið myndi halda áfram að tapa fylgi ef það héldi áfram að segja fólki hvernig það ætti að hugsa og tala.
Hér er spot on greining úr óvæntri átt. pic.twitter.com/pjiaRxFGh1
— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) April 6, 2025