Stefán Einar spyr Svein Andra hvort hann sé raknaður úr rotinu eftir gagnrýni þess síðarnefnda á fréttaflutning Morgunblaðsins

Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, segist fagna því að lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson sé aftur farinn að láta að sér kveða eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB viðræður 29. ágúst.

Hann skaut fast á Svein Andra undir Facebook færslu lögmannsins þar sem fréttaflutningur Morgunblaðsins af framfærslu sakborninganna í Höfðatorgsmálinu var gagnrýndur.

Auglýsing

„Nei ertu raknaður úr rotinu blessaður eftir 29. ágúst. Við erum mörg sem fögnum endurkomu þinni. En aumingja Viðreisn!“ skrifaði Stefán Einar.

Skotið er auðvitað tilvísun í þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst þar sem Íslendingar höfnuðu því að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Sveinn Andri hafði verið áberandi stuðningsmaður já-hliðarinnar í aðdraganda kosningarinnar.

Segir upplýsingarnar engu skipta

Tilefni færslu Sveins Andra var frétt Morgunblaðsins um að sakborningarnir þrír í Höfðatorgsmálinu hefðu lítið sem ekkert verið á almennum vinnumarkaði og einkum verið á framfæri sveitarfélaga. Mennirnir, tveir Palestínumenn og einn Sómali, eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps.

Sveinn Andri, sem ver einn mannanna, sagðist ekki muna eftir því að atvinnustaða eða framfærsla sakborninga hefði áður verið gerð að aðalatriði í fréttum þegar upplýsingarnar hefðu enga þýðingu fyrir sakamálið sjálft.

Hann velti því upp hvort fréttaflutningurinn tengdist því að mennirnir væru útlendingar og múslimar. Þá sagði hann að aðrir yrðu að meta hvort umfjöllunin varðaði við persónuverndarlög eða siðareglur blaðamanna.

Ummælin loguðu

Færsla Sveins Andra vakti hörð viðbrögð. Fjöldi fólks mótmælti því að upplýsingar um langvarandi framfærslu mannanna væru málinu óviðkomandi og sagði almenning eiga rétt á að vita hvernig skattfé væri ráðstafað.

Sveinn Andri svaraði nokkrum gagnrýnendum fullum hálsi. Þegar kona sagði að annar notandi hefði „pakkað honum saman“ svaraði hann að þær myndu ekki koma vel út úr PISA könnun þegar kæmi að lesskilningi, en ummæli hennar voru með fleiri „likes“ en færslan sjálf þegar fréttin var skrifuð.

Annar gagnrýnandi spurði hvernig menn sem hefðu lítið lagt til samfélagsins en þegið milljónir gætu ekið um á Range Rover. Sveinn Andri leiðrétti að bifreiðin hefði verið Defender.

Fyrir áhugasama er því líf og fjör í kommentunum undir færslu Sveins Andra en Nútíminn mælir með því að poppa áður en haldið er í það ævintýri.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing