Stór hluti Berlínarborgar rafmagnslaus eftir hryðjuverk öfga vinstri samtaka – Að minnsta kosti ein kona dó úr kulda

Tugir þúsunda íbúa í Berlín voru án rafmagns og hita í allt að fjóra daga eftir að íkveikjuárás olli umfangsmiklu rafmagnsleysi í borginni um helgina.

Mikill kuldi og snjókomu hafa herjað á svæðið og fór hitastig niður fyrir frostmark.

Auglýsing

Rafmagnsleysið er talið það lengsta í borginni frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Árás á raforkukerfið snemma á laugardagsmorgun

Íkveikjan varð í dögun á laugardegi þegar eldur kviknaði í göngum yfir Teltow skurðinn í suðurhluta Berlínar.

Eldurinn skemmdi háspennukapla í grennd við raforkuver í Lichterfelde og leiddi til þess að rafmagn var tekið af um klukkan sex að morgni.

Afleiðingarnar voru svakalegar.

Um 45 þúsund heimili og rúmlega tvö þúsund fyrirtæki í fjórum hverfum í suðvesturhluta borgarinnar urðu rafmagnslaus, þar á meðal í Nikolassee, Zehlendorf, Wannsee og Lichterfelde.

Öfga vinstri samtök lýsa yfir ábyrgð

Öfgavinstri hópurinn Vulkangruppe lýsti yfir ábyrgð á árásinni í bréfi sem sent var lögreglu og dreift á netinu.

Þar segir að árásin hafi beinst að jarðefnaeldsneytisiðnaði og að tilgangurinn hafi verið að mótmæla uppbyggingu jarðefnaeldsneytisdrifinna orkuvera og notkun gervigreindar sem hópurinn telur hraða loftslagsbreytingum.

Í bréfinu biðst hópurinn afsökunar á þeim óþægindum sem íbúar í hverfunum urðu fyrir, sérstaklega tekjulægri íbúar, og segir að rafmagnsleysi hafi ekki verið markmið aðgerðanna heldur afleiðing.

Mikil áhrif á daglegt líf og þjónustu

Rafmagnsleysið olli verulegri röskun á daglegu lífi.

Ekki var hægt að kynda hús út á meðan næturhiti fór niður í um tíu stiga frost.

Lestir voru stöðvaðar á nokkrum leiðum og farsímasamband raskaðist víða.

Fimm sjúkrahús í viðkomandi hverfum þurftu að reiða sig á vararafstöðvar þar til rafmagn komst aftur á.

Þá urðu mörg fyrirtæki að loka tímabundið, með tilheyrandi matarsóun og tekjutapi.

Íbúar skipulögðu sjálfir neyðaraðgerðir, meðal annars með því að deila rafstöðvum og aðstoða aldraða og viðkvæma.

Sumir leituðu skjóls hjá vinum eða kunningjum í öðrum hverfum þar sem rafmagn var óskert.

Andlát og rannsókn yfirvalda

Í kjölfar rafmagnsleysisins lést 83 ára kona.

Lögregla hefur staðfest andlátið.

Þá bárust tilkynningar um innbrot á meðan myrkrið stóð yfir.

Yfirvöld hafa lýst árásinni sem hryðjuverki af hálfu öfgavinstri samtaka.

Ríkissaksóknarar í Þýskalandi hafa hafið rannsókn á málinu.

Hópur með langa sögu árása

Vulkangruppe er þekktur öfga vinstri hópur í Þýskalandi sem aðhyllist anarkisma, andkapítalisma og róttæka umhverfisstefnu.

Samkvæmt þýskum öryggisyfirvöldum hefur hópurinn staðið að fjölda árása á mikilvæga innviði frá árinu 2011.

Á síðasta ári lýsti hópurinn einnig yfir ábyrgð á árás á raforkukerfi sem knýr stóra bílaverksmiðju í nágrenni Berlínar, sem leiddi til stöðvunar framleiðslu í nokkra daga.

Rafmagn var að fullu komið á aftur í viðkomandi hverfum á miðvikudag, fjórum dögum eftir árásina, en yfirvöld vara við því að slíkar aðgerðir geti haft lífshættulegar afleiðingar.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing