Strákar eru líka fólk og verðskulda virðingu

Í nýlegum pistli á Eyjunni fjallar Jón Gnarr fjallar um umræðu sem reglulega blossar upp um stöðu drengja í samfélaginu og segir hana oft einkennast af alhæfingum, niðrandi orðræðu og skorti á skilningi.

Hann varar við því að strákar séu afmennskaðir í umræðunni og gerðir að vandamáli fremur en fólki.

Umræða sem aftengir fólk

Auglýsing

Jón bendir á að þegar rætt sé um námsárangur og hegðun drengja sé gjarnan gripið til orðalags sem fjarlægir umræðuna frá raunverulegum einstaklingum.

Það verði til að talað sé um drengir sem „einstaklingum í samfélaginu“ og vandinn settur fram á tæknilegan og tilfinningasnauðan hátt.

Að hans mati er hætt við að slík orðræða dragi úr samkennd og ábyrgð.

Alhæfingar og niðrandi tónn

Í pistlinum gagnrýnir Jón hvernig rætt sé um lesskilning drengja og nefnir dæmi úr opinberri umræðu þar sem gefið sé í skyn að stór hluti þeirra ráði ekki við flókna texta.

Hann spyr hvernig slík orðræða myndi hljóma ef hún beindist að stúlkum og telur að slíkt sé orðalag sem smám saman mótar neikvæða ímynd drengja.

Persónuleg reynsla úr bernsku

Jón rifjar upp eigin reynslu af skólagöngu og greiningum á barnsaldri, þar sem lítið var gert úr möguleikum hans og litlar væntingar gerðar til hans.

Hann lýsir því hvernig hann var fluglæs en glímdi við skrif- og talnablindu, átti erfitt með að sitja kyrr og var oft stimplaður sem tregur.

Þrátt fyrir það hafi hann náð árangri á eigin forsendum síðar á lífsleiðinni.

Strákar í dag hæfari en áður

Hann segir reynslu sína af ungu fólki, ekki síst strákum, sýna að þeir séu almennt upplýstari og tilfinningalega þroskaðri en strákar voru í hans eigin æsku.

Að hans mati standist ekki sú mynd sem oft er dregin upp af þeim í opinberri umræðu.

Jón tekur skýrt fram að hann sé jafnréttissinni og hafi alla tíð stutt baráttu kvenna og annarra jaðarsettra hópa.

Hann hafnar þó þeirri hugmynd að lausnin felist í því að halli á karla í stað kvenna.

Að hans mati sýni taugavísindarannsóknir að raunverulegur líffræðilegur munur sé á kynjum og að samfélagið verði að taka tillit til þess án þess að fella gildisdóma.

Hvetur til meiri virðingar

Í lokin hvetur Jón til þess að hætt verði að tala stráka niður og að þeim verði mætt með virðingu og trausti.

Hann varar við því að stimpla alla karlmennsku sem eitraða og segir samfélagið þurfa að ná jafnvægi í alvöru jafnrétti.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing