Ethan Scott Brown, 23 ára háskólanemi við Háskólann í Glasgow, svipti sig lífi þann 13. desember 2024, daginn sem hann átti að útskrifast með gráðu í landafræði, eftir að hafa fengið þau skilaboð frá skólanum að hann hefði ekki staðist öll skyldunámskeið og gæti því ekki útskrifast.
Í kjölfarið hóf móðir hans, Tracy Scott, að krefjast svara og nú hefur komið í ljós að um var að ræða mistök af hálfu skólans.
Innri rannsókn leiddi í ljós að Ethan hefði í raun fengið einkunnina sem upp á vantaði, og átti að útskrifast með samnemendum sínum.
„Sonur minn trúði því að hann hefði brugðist en í raun brást skólinn honum,“ sagði móðir hans á blaðamannafundi í dag.
„Hann var góðhjartaður og kærleiksríkur ungur maður sem við elskuðum öll. Þetta kerfi svipti okkur honum, og hann yfirgaf heiminn í þeirri trú að honum hefði mistekist.“
Kerfisbilun
Fjölskyldan telur að mistökin feli í sér kerfisbundna bilun innan háskólans.
Þau krefjast svara um hvort fleiri nemendur hafi lent í sambærilegum aðstæðum og hvort viðeigandi stuðningur hafi verið til staðar fyrir þá sem glíma við andlega vanlíðan.
Ethan hafði áður tilkynnt um andleg veikindi til skólans, en samkvæmt fjölskyldunni fékk hann engan stuðning í kjölfarið.
Lögmaður fjölskyldunnar segir málið vekja alvarlegar spurningar um skyldur háskóla gagnvart velferð nemenda.
„Það er áhyggjuefni að þessi mistök hefðu aldrei komið upp í dagsljósið nema vegna dauða Ethans,“ sagði hann.
Viðbrögð skólans og yfirvalda
Í yfirlýsingu frá Háskólanum í Glasgow kom fram að „hörmuleg mistök“ hafi átt sér stað í útreikningi á lokaeinkunn Ethan.
Skólinn harmar atvikið og segir það vera einangrað tilfelli.
Eftir atburðinn hafi skólinn endurskoðað innra verklag og fræðslu starfsmanna prófnefnda.
„Við erum harmi slegin yfir þessari hörmulegu atburðarás og skiljum sársaukann sem fjölskylda Ethans upplifir,“ segir í yfirlýsingu frá skólanum. „Við munum áfram leita leiða til að auka bæði gæði náms og stuðningsnet innan skólans.“
Menntamálaráðherra Skotlands, Jenny Gilruth, vottaði fjölskyldunni einnig samúð: „Ég get ekki sett mig í spor fjölskyldunnar. Þetta er hræðilegur atburður og ég hvet allar menntastofnanir til að skoða hvernig þær geta komið í veg fyrir að eitthvað svona endurtaki sig.“
Fjölskyldan vill breytingar
Fjölskylda Ethan krefst aðgerða frá stjórnvöldum til að tryggja að skólakerfið beri ábyrgð á velferð nemenda sinna.
„Við viljum ekki að dauði Ethan verði til einskis,“ sagði móðir hans. „Við viljum ekki að nokkur önnur fjölskylda þurfi að ganga í gegnum það sem við höfum upplifað.“