Taxý Hönter grípur erlendan leigbílstjóra með 9.000 króna startgjald

Friðrik Einarsson, leigubílstjóri og einskonar aktívisti sem kallar sig Taxý Hönter á X, heldur áfram baráttu sinni gegn spillingu og aðgerðaleysi innan leigubíla- og eftirlitskerfa landsins.

Í nýjustu færslu sinni birtir hann myndband sem hann segir vera frá síðastliðnu föstudagskvöldi og fer yfir sögu einstaklings sem hann segir táknrænan fyrir brotalamir í kerfinu, bílstjóra sem kallar Dýrlinginn, en heitir réttu nafni Saint Paul Edeh.

Myndbandið: 9000 króna startgjald og ósæmileg framkoma

Auglýsing

Myndbandið sem Friðrik birtir sýnir bílstjóra við störf með mæli stilltan á 9000 króna startgjald.

„Ég hef áður tekið hann með mælinn á 3000 og 7000 krónur,“ segir Friðrik og bætir við að enginn sleppi út úr bílnum hans án þess að greiða.

Umræddur bílstjóri sé „strangtrúaður fjölskyldumaður“ sem keyri undir merki stöðvarinnar Amen Taxi.

Kvenkyns fylgjandi Friðriks á X, 21 árs, flúði að sögn Friðriks inn í bíl hans eftir að hafa orðið fyrir óviðeigandi athugasemdum frá sama bílstjóra sem spurði hana um aldur, hrósaði henni fyrir útlit og bað um símanúmer hennar.

Hótanir, svik og afskipti lögreglu

Friðrik fer svo ítarlega yfir feril bílstjórans og hefur lítið gott að segja en Nútíminn mun ekki hafa það eftir hér en hægt er að sjá það í færslu Friðriks hér fyrir neðan.

Yfirstjórn KEF og Samgöngustofu gagnrýnd harðlega

Friðrik beinir spjótum sínum sérstaklega að eftirfarandi embættismönnum:

• Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem hann segir að hafi ekkert yfirlit yfir stöðuna á Keflavíkurflugvelli.
• Freyja Másdóttir og Unnar Örn Ólafsson hjá Samgöngudeild Isavia, sem hann sakar um að fela sig innandyra og láta 740 daga líða án sýnilegs eftirlits á bílastæðum KEF.
• Guðrún Huld Birgisdóttir hjá Samgöngustofu, sem hann segir hafa veitt mönnum leyfi til leigubílaaksturs þrátt fyrir fjölda kvartana.

Friðrik lýsir því að þegar hann loks hitti Freyju í ágúst 2023 og fór að lesa yfir feril bílstjórans, stoppaði hún hann og spurði: „Fyrirgefðu, hver er þetta eiginlega?“

Friðrik krefst þess að eftirtaldir embættismenn svari fyrir sitt hlutverk í málinu og ástandið sem ríkt hefur á flugvallarsvæðinu og í leigubílageiranum síðastliðin tvö ár.
„Það er eitthvað mjög gruggugt í gangi í bransanum. Allir eftirlitsaðilar virðast ganga erinda einhverra annarra en leigubílstjóra og farþega þeirra.“

Mikil óreiða hefur ríkt á leigubílamarkaði að undanförnu, en Nútíminn hefur sagt frá fréttum af slíku ítrekað.

Vargöld hefur ríkt á íslenskum leigubílamarkaði en nú verður breyting þar á

Hægt er að sjá færslu Friðriks hér fyrir neðan ásamt myndbandinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing