Taxý Hönter sakar Isavia um rangfærslur, lygar og blekkingar

Taxý Hönter hefur enn og aftur vakið athygli eftir að Isavia lýsti því yfir að ástand á leigubílastæði Keflavíkurflugvallar hefði batnað verulega síðustu mánuði en hann skrifar pistil þeim til höfuðs.

Taxý Hönter, eða Friðrik Einarsson, vitnar í ummæli upplýsingafulltrúa Isavia sem birtust í frétt Vísis.is en þar er fullyrt að færri leigubílstjórum hafi verið meinaður aðgangur að flugstöðinni og að þjónustan gangi nú betur en áður.

Auglýsing

Taxý Hönter hafnar þessum skýringum alfarið og segir tölurnar rangtúlkaðar og notaðar til að fegra stöðuna.

Hann segir fækkun þeirra sem settir hafi verið í bann ekki endurspegla betri stjórnun eða eftirlit heldur einfaldlega minni umferð og því séu þar færri tækifæri til árekstra en áður.

„Dauðir mánuðir og færri flugvélar“

Að hans mati skýrist fækkun bílstjóra í banni fyrst og fremst af því að síðustu sex mánuðir hafi að mestu verið rólegir mánuðir í flugi, þar á meðal haustið og fyrri hluti vetrar.

Þá hafi fall flugfélagsins Play haft veruleg áhrif, þar sem hvarf þeirra véla hafi skilið eftir lengri eyður í flugumferð og þar með sé einfaldlega mun minni umferð á leigubílastæðinu.

Hann segir að áður hafi vélar Playr fyllt upp í „dauða tíma“ en nú séu jafnvel langar hrinur þar sem engin hreyfing sé á röðinni og fáir eða engir leigubílar sjáist við flugstöðina.

Gagnrýni á gæslu og mannafla

Í pistlinum er einnig harðlega gagnrýnt hvernig Isavia hafi skipulagt gæslu á leigubílastæðinu.

Þar er því haldið fram að ungir og óreyndir starfsmenn bílastæðaþjónustu hafi verið settir í hlutverk sem þeir séu hvorki þjálfaðir né undirbúnir fyrir.

Hann gagnrýnir jafnframt samstarf Isavia við öryggisfyrirtæki sumarið 2024 og heldur því fram að óþjálfað fólk hafi starfað sem öryggisverðir, jafnvel með stuðningi frá Vinnumálastofnun.

Ásakanir um endurteknar lygar

Stór hluti pistilsins er svo persónuleg gagnrýni á upplýsingafulltrúa Isavia.

Taxý Hönter telur upp nokkur dæmi frá síðustu árum þar sem hann segir yfirlýsingar til fjölmiðla og sveitarfélaga hafa ekki staðist, meðal annars um merkingar fyrir Strætó, breytingar á gjaldtöku leigubíla og loforð um ný stöðugildi í öryggisgæslu.

Hann segir jafnframt að fullyrðingar um samráð við sérfræðinga í tengslum við umdeild mál á flugvellinum hafi ekki verið efndar í framkvæmd, heldur hafi einfaldar lokanir og skammtímalausnir verið notaðar.

Isavia segir þjónustuna hafa batnað

Í skriflegu svari Isavia til Vísis kemur fram að mat forsvarsmanna flugvallarins sé að samskipti við leigubílstjóra séu almennt betri en áður og að þeim tilvikum sem gripið hafi þurft til aðgerða hafi fækkað verulega.

Þar segir einnig að starfsmaður sé á vakt á leigubílasvæðinu á háannatímum til að aðstoða farþega og stuðla að góðri þjónustu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing