Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, segir stjórnvöld þurfa að ná utan um vaxandi útgjöld almannatryggingakerfisins áður en skattar verði hækkaðir enn frekar. Hún bendir á að samanlagðar greiðslur vegna örorku og endurhæfingar hafi tvöfaldast að nafnvirði frá árinu 2018.
Opinber gögn staðfesta að greiðslurnar námu 113,7 milljörðum króna árið 2025. Þar af fóru 85,3 milljarðar í örorkugreiðslur og 28,4 milljarðar í sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.
Segir mikinn mun eftir fæðingarlandi
Nanna tengir útgjaldaaukninguna við umræðuna um útlendingamál og vísar til nýrra gagna frá Tryggingastofnun um bótaþega á aldrinum 18 til 66 ára.
„Þegar litið er til fæðingarlands þeirra sem þiggja umræddar bætur kemur í ljós mikill munur á hlutfalli bótaþega eftir löndum,“ skrifar hún.
Samkvæmt útreikningum Nönnu er einstaklingur fæddur í Marokkó fjórum sinnum líklegri til að þiggja bæturnar en einstaklingur fæddur á Íslandi. Hún segir einstakling fæddan í Palestínu tvisvar sinnum líklegri og einstakling fæddan í Túnis 2,9 sinnum líklegri.
Gögn Alþingis sýna að árið 2025 voru 297 einstaklingar frá Marokkó á aldrinum 18 til 66 ára búsettir á Íslandi. Af þeim fengu 59 örorkulífeyri og 27 sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur. Hugsanlegt er að sömu einstaklingar komi fyrir í báðum hópum.
Sambærilegar tölur fyrir Palestínu voru 647 íbúar, 15 örorkulífeyrisþegar og 87 sem fengu sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur. Nákvæmar tölur fyrir Túnis eru ekki birtar í fylgiskjalinu vegna þess hve einstaklingarnir eru fáir.
Screenshot

Greiðslur til MENAPT hópsins fimmfaldast
Önnur opinber gögn sýna mikla fjölgun bótaþega frá Miðausturlöndum, Norður Afríku, Afganistan og Pakistan á síðustu árum.
Árið 2018 fengu 129 einstaklingar frá þessum ríkjum örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Árið 2025 voru þeir orðnir 463 og hafði því fjölgað um 259 prósent.
Greiðslurnar jukust á sama tíma úr rúmum 357 milljónum króna í tæpa 1,9 milljarða. Það er meira en fimmföldun að nafnvirði. Tölurnar fyrir árið 2025 miðast þó við fyrstu átta mánuði ársins vegna breytinga sem gerðar voru á bótakerfinu 1. september.
Eftirlitsmálum fækkaði verulega
Nanna segir eftirlit með bótasvikum hafa gott sem verið lagt af. Svar félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn hennar sýnir að eftirlitsmálum hjá Tryggingastofnun fækkaði mjög eftir árið 2019.
Alls voru 528 slík mál opnuð árið 2010 og 377 árið 2018. Fjöldinn féll niður í 109 árið 2020 og aðeins 35 árið 2021.
Eftirlitsmálum hefur aftur fjölgað undanfarin ár. Þau voru 112 árið 2024 og 137 árið 2025, en voru engu að síður 64 prósentum færri en árið 2018.
Tryggingastofnun hefur heldur ekki heimild til að fylgjast með því hvort lífeyrisgreiðslur séu fluttar úr landi. Þegar lífeyrir hefur verið greiddur telst hann eign bótaþegans og hefur viðkomandi fullan rétt til að ráðstafa honum.
„Hvernig væri að ná utan um útlendingamálin og lykilmálaflokka? Áður en landinn er skattpíndur meira og meira til að fóðra stjórnlaus ríkisútgjöld,“ skrifar Nanna.