Það sem vitað er um skotárásina í Minneapolis: Rannsökuð sem hatursglæpur, trans byssumaður og tvö börn látin

Minnst tvö börn, átta og tíu ára gömul, létust í hryllilegri skotárás í Annunciation Catholic School í Minneapolis á miðvikudag.

17 aðrir særðust, þar á meðal 14 börn, sjö þeirra alvarlega.

Auglýsing

Lögregla segir árásarmanninn hafa svipt sig lífi eftir árásina.

Samkvæmt Minneapolis Police Chief, Brian O’Hara, var árásarmaðurinn vopnaður riffli, haglabyssu og skammbyssu og skaut tugum skota inn um glugga kirkjunnar þar sem börn sátu við messu á fyrstu skóladögum haustsins.

„Þetta var vísvitandi ofbeldisverk gegn saklausum börnum og öðrum kirkjugestum. Grimmdin og hugleysi sem býr að baki slíku er algjörlega ólýsanlegt,“ sagði hann.

FBI rannsakar árásina sem hatursglæp

Kash Patel, forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, staðfesti að málið sé rannsakað sem bæði hryðjuverk og hatursglæpur gegn kaþólskum.

Hann sagði árásina hafa verið skipulagða aðgerð sem beindist sérstaklega að trúarsöfnuði.

„Þetta var verknaður sem byggði á hatri, beint sérstaklega að kaþólskum, og verður rannsakað sem slíkt,“ sagði Patel og bætti við að almenningur yrði upplýstur frekar eftir því sem rannsókn miðar áfram.

Árásarmaðurinn trans einstaklingur

Yfirvöld hafa nafngreint árásarmanninn sem Robin Westman, 23 ára.

Robin var upprunalega skírður Robert Westman.

Samkvæmt breska dagblaðinu The Telegraph breytti Westman nafninu löglega árið 2019 með leyfi foreldra sinna, Mary Grace og James Westman.

Þá hafi hann einnig lýst því yfir að hann „upplifði sig sem konu“.

Móðir hans, Mary Grace, starfaði sjálf í fimm ár sem ritari við Annunciation School áður en hún lét af störfum 2021.

Kirkjan birti þá færslu á Facebook þar sem henni var þakkað fyrir hlýju, vináttu og samkennd.

Foreldrar hans búa í grennd við kirkjuna þar sem árásin var framin.

„Manifesto“ og vopnasafn á netinu

Fjölmiðlar vestanhafs hafa greint frá því að myndbönd, sem talin eru vera frá Westman, hafi verið birt á YouTube og samfélagsmiðlinum X aðeins nokkrum klukkustundum fyrir árásina.

Í þeim megi sjá skotvopn, meðal annars hálfsjálfvirkan riffil og haglabyssu, með áletrunum á skothylkjum á borð við „for the children“ og „kill Donald Trump“.

Í öðru myndbandi virðist árásarmaðurinn fletta í gegnum það sem lítur út fyrir að vera „manifesto“, skrifað bæði á ensku og rússnesku, með dagbókarfærslum og skýringarmyndum af byssum.

Enginn fjölmiðill hefur þó fyllilega sannreynt að efnið sé ósvikið og FBI hefur ekki viljað tjá sig um það opinberlega en neitar ekki að svo sé.

Forseti Bandaríkjanna bregst við

Donald Trump forseti sagði á Truth Social að hann hefði verið „fullkomlega upplýstur“ um atburðina. Hann óskaði fórnarlömbum og fjölskyldum þeirra styrks og bað þjóðina að sameinast í bæn.

Hann gaf einnig út tilskipun um að bandaríski fáninn skyldi dreginn í hálfa stöng á öllum opinberum byggingum fram til 31. ágúst til minningar um fórnarlömbin.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing