Þegar blaðamennska verður að rógburði

Heimildin heldur því fram í nýbirtri grein að þáttastjórnendur Bjórkastsins skilgreini sig sem hægriöfgamenn. Það er rangt. Hefðu þeir svo mikið sem hlustað á einn þátt myndu þeir vita að þáttastjórnendur hafa ólíkar skoðanir á mörgu. Ég hef aldrei skilgreint mig sem hægriöfgamann. Þar eru mér gerðar upp skoðanir. Sú niðurstaða virðist vera meðal annars leidd af orðum Ísidórs Natanssonar, sem í eitt sinn kom sem gestur í þáttinn okkar, þótt ég dragi í samtali okkar fram skýra línu, segi mig honum ósammála og gagnrýni nasískar hugmyndir. Einnig er því haldið fram að Sverrir Helgason, sem er einn meðstjórnenda þáttarins, hafi ekki neitað því að vera rasisti. En það er ekki það sem hann sagði. Réttara væri að segja að honum hafi einfaldlega staðið á sama um þá uppnefningu.

Í greininni er einnig látið að því liggja að Ölgerðin hafi þurft að fjarlægja sig frá okkur. Staðreyndin er sú að við tókum fram í upphafi allra þátta að við værum ekki styrktir af Ölgerðinni og höfum aldrei haldið öðru fram. Heimildin hringdi í Ölgerðina og spurði hvort við værum styrktir. Síðan var það sett upp eins og Ölgerðin hefði átt frumkvæði að því að fjarlægja sig frá okkur. Lesendur mega sjálfir dæma þau vinnubrögð. Þetta var brandari. Okkur þótti fyndið að eitt regnbogavottaðasta fyrirtæki landsins skyldi framleiða hvíta Orku. Kaldhæðnin var augljós.

Auglýsing

Þetta eru sérstaklega óvönduð vinnubrögð af hálfu miðils sem kennir sig við heimildir. Ég hef heyrt menn hlæja og gera gæsalappir með fingrunum þegar þeir segja „Heimildin“, því þeir skeita engu um heimildir eða sannleika. Ég á ekki von á opinberri afsökunarbeiðni eða leiðréttingu frá Heimildinni. En í þessu máli er nákvæm heimildarvinna einmitt það sem skilur fréttamennsku frá rógburði.

Ég ætla að nota þetta tækifæri til að staðsetja mig pólitískt. Í grunninn aðhyllist ég frjáls- og einstaklingshyggju, kristin gildi og menningu. Ég trúi á einstaklingsfrelsi, persónulega ábyrgð og jafnrétti á grundvelli einstaklinga, en ekki hópa. Ég aðhyllist samfélag sem byggir á verðleikum einstaklinga og framlagi, óháð kynþætti, kyni eða kynhneigð.

Ég er hins vegar ekki hugmyndafræðilegur kalvínisti. Við búum í norrænu velferðarsamfélagi sem ríkir almenn sátt um og yrði seint kollvarpað, heldur aðeins minnkað. Þess vegna gef ég ákveðinn afslátt af hreinni frjálshyggju. Ég get vel skilið þá afstöðu að það sé bæði rétt og skynsamlegt að samfélag haldi úti lágmarksöryggisneti. Hins vegar þarf velferðarkerfið að vera minna í umsvifum, sjálfbært og ekki letjandi.

Opin landamæri og velferðarkerfi ganga ekki saman. Þetta er ekki skoðanamál, heldur stærðfræði. Ef við ætlum að viðhalda kerfi sem er fjármagnað af skatttekjum þurfa þeir sem koma til landsins, þegar upp er staðið, að vera nettóframleiðendur en ekki nettóneytendur. Þetta hefur allt verið rætt í þáttunum.

Bjórkastið hefur rætt málefni sem fáir eða jafnvel engir þora að ræða frá öllum hliðum: innflytjendastefnu, fóstureyðingar, velferðarkerfi, stöðu öryrkja og hlutfall þeirra, samfélagslegan kostnað mismunandi hópa, covid frá öllum hliðum, bóluefni, BLM, MeToo, feminisma og margt annað. Við þorum meðan aðrir þegja og það virðist hræða þá sem hafa ræktað hvað mest þöggunartilburði í samfélaginu. Við teljum að orð séu til alls fyrst og að opin umræða sé grundvöllur lýðræðis.

Paradigm, félag sem stofnað var til að auka umræðu í samfélaginu, bauðst til að halda bjórkvöld með Bjórkastinu, sem verður í Bryggjuhúsinu föstudaginn 27. mars kl. 18:30. Þar munum við sitja fyrir svörum ásamt nokkrum vel völdum gestum, m.a Hannesi Hólmsteini að þessu sinni.

Það má tryggja sér miða á midix.is áður en það verður uppselt.

Helgi Bjarnason, einn af þremur stjórnendum Bjórkastsins.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing