Þegar borgarinn eignast hljóðnema

Erna Bjarnadóttir skrifar:

Núgildandi fjölmiðlalög eru frá árinu 2011. Á þeim fimmtán árum sem síðan eru liðin hefur tæknin fært einstaklingum möguleika til að dreifa skoðunum sínum með hætti sem áður var að miklu leyti á valdi stofnana. Dagblaðið þarf ekki lengur að birta greinina, útvarpsstöðin þarf ekki að afhenda hljóðnema og sjónvarpsstöðin þarf ekki að hleypa viðkomandi í myndverið. Borgarinn getur byggt vettvanginn sjálfur og opinber rödd þarf því ekki lengur að vera fengin „að láni“ frá stofnun.

Auglýsing

Höfundur þessarar greinar þekkir báða heimana. Fyrir nokkrum áratugum byggði höfundurinn upp opinbera rödd samhliða störfum fyrir Framleiðsluráð landbúnaðarins og síðar Bændasamtök Íslands, þar sem Bændablaðið var einn helsti birtingarvettvangurinn. Síðar birtist fjöldi greina eftir höfundinn í starfi hagfræðings hjá Mjólkursamsölunni. Þegar starfsheitið fylgdi nafninu gaf það jafnframt til kynna að greinin væri birt með vitund og samþykki vinnuveitandans.

Greinar hafa jafnframt birst eingöngu undir eigin nafni höfundarins. Framboð og seta sem varaþingmaður stjórnmálaflokks, eða trúnaðarstörf fyrir samtök, gera það sem einstaklingur skrifar eða segir ekki sjálfkrafa að málflutningi flokksins eða samtakanna. Að tilheyra stofnun er einfaldlega ekki hið sama og að tala í umboði hennar.

Þórarinn Hjartarson hefur byggt sér annan vettvang. Frá árinu 2019 hefur hann haldið úti hlaðvarpinu Ein pæling og sjálfur hefur hann lýst stöðu sinni ágætlega: „Ég er bara lobbíisti eigin skoðana.“

Þar hittast Þórarinn og höfundur þessarar greinar. Bæði geta tekið þátt í opinberri umræðu í eigin nafni án þess að röddin sé fengin að láni frá stofnun. Annað talar, hitt skrifar. Hljóðneminn er ekki alltaf úr málmi.

Hvenær verður borgari fjölmiðill?

Með ákvörðun nr. 4/2026, hinn 26. ágúst 2026, komst Fjölmiðlanefnd að þeirri niðurstöðu að Ein pæling væri skráningarskyldur fjölmiðill og lagði 500.000 króna stjórnvaldssekt á Þórarinn vegna þess að starfsemin hafði ekki verið skráð. Nefndin hafði fyrst óskað eftir skráningu á hlaðvarpinu í nóvember 2025 og Þórarni var því kunnugt um afstöðu hennar löngu áður en sektin var lögð á. Ein pæling hafði þá verið starfrækt í um sex ár.

Spurningin er því ekki aðeins hvað Þórarinn vissi eftir að Fjölmiðlanefnd hafði sagt honum hvernig hún flokkaði starfsemina heldur hvað hann átti að geta vitað áður.

Fjölmiðlanefnd hefur sjálf bent á að mörkin geti verið óljós. Við mat á því hvort hlaðvarp teljist fjölmiðill horfir nefndin meðal annars til þess hvort efnið lúti ritstjórn, hvort því sé miðlað reglulega og til almennings og hvort tilgangurinn sé að upplýsa, fræða eða skemmta. Jafnvel þótt þessi skilyrði séu uppfyllt er þó ekki sjálfgefið að hlaðvarp teljist fjölmiðill. Persónubundið hlaðvarp sem svipar til bloggsíðu getur fallið utan hugtaksins og fleiri atriði koma til heildarmats, meðal annars hvort fjárhagslegur ávinningur sé af starfseminni.

Dómstólar hafa þegar fengist við þessi mörk. Í máli E-1699/2021, sem varðaði hlaðvarpið The Mike Show, taldi Héraðsdómur Reykjaness ekki nægja að um hlaðvarp væri að ræða. Þótt hlaðvörp geti í eðli sínu talist fjölmiðlar þurfi að liggja fyrir upplýsingar sem geri kleift að leggja heildstætt mat á hvort viðkomandi starfsemi falli undir skilgreiningu fjölmiðlalaga. Í málinu skorti meðal annars upplýsingar um fjárhagslegan ávinning og því taldi dómurinn ekki unnt að leggja ábyrgðarreglur fjölmiðlalaga til grundvallar.

Hvorki miðlunarformið eitt né megineinkennin sem Fjölmiðlanefnd telur upp draga því skýra línu milli einstaklings sem miðlar eigin efni og fjölmiðils.

Ari Eldjárn tekur prófið

Hugsum okkur Ara Eldjárn halda vikulega satíríska þætti um stjórnmál og samfélagsmál. Hann velur viðfangsefnin, semur eigið efni, velur gesti og stýrir samtölunum. Pólitísk satíra er jafnframt þátttaka í samfélagsumræðu; Spaugstofan valdi árum saman viðfangsefni úr stjórnmálum og samfélagi, túlkaði þau og setti í nýtt samhengi.

Ari flytur efnið fyrst á sviði en tekur það síðan upp og birtir á netinu. Útgáfan verður regluleg, gestir koma í þættina og með tímanum bætast við auglýsingar og áskriftartekjur. Hvenær verður Ari fjölmiðill?

Í mati Fjölmiðlanefndar á Einni pælingu skiptir meðal annars máli að Þórarinn velur umræðuefni og viðmælendur og stýrir samtölum. Hann hefur þannig stjórn á vali og skipan eigin efnis. Það hefur Ari líka og höfundur skoðanagreinar velur sömuleiðis viðfangsefni, heimildir, röksemdir og uppbyggingu.

Stjórn á eigin efni greinir því ekki ein og sér á milli borgarans og fjölmiðilsins. Sé viðbótareiginleikinn regluleiki kemur reglulegur greinahöfundur inn í myndina. Sé það útbreiðsla geta lagalegu mörkin færst eftir því sem fleiri fara að hlusta eða lesa. Séu það tekjur þarf að spyrja hvort breytingin verði við fyrstu auglýsinguna, fyrsta áskrifandann eða einhvern annan fjárhagslegan þröskuld. Séu það viðmælendur þarf að skýra hvers vegna samtal við annan einstakling breytir eðli eigin miðlunar.

Öll þessi atriði geta skipt máli við heildarmat en ekkert þeirra segir eitt og sér hvar mörkin liggja.

Hvenær var farið yfir mörkin?

Ein pæling hóf göngu árið 2019 en Fjölmiðlanefnd óskaði eftir skráningu haustið 2025. Ef Ein pæling var ekki fjölmiðill árið 2019 en var orðin fjölmiðill árið 2025 hlýtur einhvern tíma að hafa verið farið yfir mörkin.

Var það við fyrstu auglýsinguna eða fyrsta áskrifandann, þegar útgáfan varð tíðari, hlustendum fjölgaði eða efnistök breyttust? Ef Ein pæling var hins vegar fjölmiðill frá upphafi verður spurningin önnur: Hvernig átti Þórarinn að vita það?

Þetta er ekki aðeins fræðileg spurning um skilgreiningu. Samkvæmt fjölmiðlalögum skal fjölmiðlaveita tilkynna Fjölmiðlanefnd um skráningarskylda starfsemi áður en hún hefst. Sá sem hyggst hefja starfsemi þarf því sjálfur, áður en fyrsta efnið birtist, að geta áttað sig á því hvort það sem hann ætlar að gera falli í þann flokk sem löggjafinn hefur gert skráningarskyldan.

Mat Fjölmiðlanefndar árið 2025 sagði Þórarni hvorum megin línunnar nefndin taldi hann standa. Eftir stendur hversu skýr og fyrirsjáanleg sú lína var áður en stjórnvaldið lagði mat sitt á starfsemina.

Þegar mat birtist sem vald

Þar skiptir máli að flokkunin hefur réttaráhrif. Brot gegn skráningarskyldunni getur varðað stjórnvaldssekt og í máli Einnar pælingar nam hún 500.000 krónum. Samkvæmt fjölmiðlalögum verður stjórnvaldssektum beitt óháð því hvort brot eru framin af ásetningi eða gáleysi.

Ákvarðanir Fjölmiðlanefndar eru fullnaðarúrlausnir innan stjórnsýslunnar og sæta ekki stjórnsýslukæru. Þórarinn getur því ekki fengið mat nefndarinnar endurskoðað hjá æðra stjórnvaldi, sem væri mun einfaldari og ódýrari leið en dómsmál. Vilji hann fá óháða úrlausn um hvort flokkunin standist þarf hann að bera málið undir dómstóla. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Sektin er aðfararhæf og sé hún ekki greidd innan mánaðar leggjast á hana dráttarvextir.

Borgarinn ber þannig áhættuna allan tímann. Hann þarf í upphafi sjálfur að meta hvort starfsemi hans sé skráningarskyld þótt mörkin ráðist af heildarmati matskenndra atriða. Komist Fjölmiðlanefnd síðar að annarri niðurstöðu getur af því leitt stjórnvaldssekt án þess að ásetningur eða gáleysi sé skilyrði. Vilji hann fá flokkunina endurskoðaða er engin stjórnsýslukæruleið til staðar heldur þarf hann sjálfur að bera kostnað og áhættu af dómsmáli. Á meðan heldur ákvörðun stjórnvaldsins gildi sínu og sektin er aðfararhæf.

Þá verður spurningin stærri en eitt hlaðvarp: Hver á að bera áhættuna af óljósum mörkum?

Tæknin hefur fært einstaklingum dreifingarvald sem áður var að miklu leyti í höndum stofnana. Borgarinn þarf ekki lengur fjölmiðil, stjórnmálaflokk eða hagsmunasamtök til að verða opinber rödd og þarf ekki stofnanalegt umboð til að öðlast áheyrendur.

Fjölmiðlalög þurfa að geta náð til nýrra miðlunarforma og einstaklingur getur vitaskuld rekið fjölmiðil. Árangur einstaklings við að byggja eigin vettvang segir hins vegar ekki einn og sér hvenær borgarinn hefur breyst í skráningarskyldan fjölmiðil.

Ritstjórinn getur hafnað greininni en hann getur ekki lengur tekið hljóðnema af höfundinum.

Ef mörkin milli einstaklings sem miðlar eigin efni og skráningarskylds fjölmiðils ráðast af heildarmati margra matskenndra þátta, hversu skýr og fyrirsjáanleg þurfa þau mörk að vera áður en ríkið getur sektað einstakling fyrir að hafa sjálfur dregið þau annars staðar?

Höfundur er hagfræðingur með diplómu í opinberri stjórnsýslu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing