Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, gagnrýnir harðlega það sem hann lýsir sem þöggun, einelti og ofbeldismenningu á vinstri væng stjórnmálanna.
Ummælin lét hann falla í Facebook umræðu undir færslu sem Björn Leví Gunnarsson, þar sem fjallað er um skoðanakúgun, pólitíska umræðu og mörkin milli gagnrýni og ofbeldis.
„Þöggunartilburðir vinstra megin eru beinlínis vinsælir“
Í færslu sinni segir Helgi Hrafn að hann þekki kúgun „ágætlega bæði vinstra og hægra megin“, en að hún sé mun útbreiddari á vinstri vængnum þegar kemur að pólitík.
„Hún er miklu stækari vinstra megin þegar kemur að pólitík,“ skrifar hann og bætir við að þöggunartilburðir þar séu ekki jaðarhegðun heldur viðtekin.
„Og ekki segja mér að þetta hafi ekki verið svona, ég var þarna, ég sá þetta með eigin augum“
„Þöggunartilburðir vinstra megin eru beinlínis vinsælir þegar kemur að pólitík og það eru heilu fræðilegu kenningarnar af réttlætingum fyrir þöggun af öllum hugsanlegum ástæðum,“ segir hann.
Lýsir „slaufunaræðinu“ sem ofbeldismenningu
Helgi Hrafn rifjar upp það sem hann kallar slaufunaræði, sem gekk yfir fyrir nokkrum árum og segir að þar hafi ekki verið um málefnalega gagnrýni að ræða, heldur markvisst ofbeldi.
„Slaufunaræðið sem gekk hérna fyrir nokkrum árum sérstaklega, var ofbeldismenning,“ skrifar hann og segir tilganginn hafa verið skýran.
„Það var beinlínis ætlunin að meiða og særa og eyðileggja fyrir fólki sem var ósammála fyrir það eitt að vera ósammála.“
Samkvæmt Helga voru þeir sem sýndu ekki tafarlausa hlýðni settir í hlutverk óvina.
„Það voru allir sem sýndu ekki strax hlýðni við Byltinguna málaðir upp sem einhverjir svikarar,“ segir hann og lýsir því hvernig „risavaxnir hópar af eineltisseggjum“ hafi síðan ráðist gegn þeim.
„Ég var þarna, ég sá þetta með eigin augum“
Helgi Hrafn hafnar alfarið því að þessi lýsing sé ýkjur og segir sig hafa orðið vitni að þessu sjálfur.
„Og ekki segja mér að þetta hafi ekki verið svona, ég var þarna, ég sá þetta með eigin augum,“ skrifar hann.
Hann viðurkennir jafnframt eigin ábyrgð og segir sig hafa verið meðvirkan gagnvart þessari hegðun.
„Ég sýndi því sjálfur meðvirkni, sem ég sé mjög eftir í dag.“
„Þetta er ógeðsleg hegðun“
Helgi Hrafn notar afar sterk orð um þessa menningu og segir hana eiga að vera kölluð sínum réttu nöfnum.
„Þetta er ógeðsleg hegðun,“ skrifar hann og bætir við að það eigi ekki að fegra hana vegna persónulegra tengsla.
„Það má bara fjandakornið alveg segja það upp í opið geðið á þessum ofbeldis- og eineltisdrullusokkum vinstra megin sem hafa lagt sig alla fram við að meiða fólk eins mikið og það getur, fyrir það eitt að vera ósammála sér,“ skrifar hann um þá sem hann segir vera á vinstri væng stjórnmála og hafa beitt ofbeldi og einelti.
Hann viðurkennir að það sé óþægilegt að gagnrýna fólk sem hafi verið vinir hans, en segir það engu breyta.
„Auðvitað er ekkert gaman að heyra svona um vini sína, en þetta var samt svona.“
Kallar eftir uppgjöri og ábyrgð
Að lokum segir Helgi Hrafn að hætta verði að réttlæta eða afsaka þessa hegðun og horfast í augu við að hún hafi verið röng.
„Það þarf að hætta að finna afsakanir fyrir þessu ógeði og horfast í augu við að þetta var rangt,“ skrifar hann.
Hann leggur áherslu á að ofbeldi sé ekki aðeins vandamál þegar það kemur frá hægri vængnum.
„Ofbeldishegðun er ekkert bara slæm þegar hægrið sýnir hana,“ segir hann og bætir við að vinstrið verði að læra af reynslunni og haga sér öðruvísi í framtíðinni.