Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, flutti harðorða ræðu á Alþingi í dag þar sem hann gagnrýndi jafnréttisstefnu ríkisstjórnarinnar og kenningar í kynjafræði innan skólakerfisins.
Sagði hann Viðreisn, sem hann lýsti sem áður markaðssinnuðum og frjálslyndum flokki, nú vera á leið með að taka við keflinu af „stjórnsömustu vinstriflokkum landsins“.
„Það veldur vonbrigðum að hinn yfirlýsti markaðssinnaði og frjálslyndi Viðreisnarflokkur hyggist taka við keflinu af stjórnlindustu vinstriflokkum hér í landi, þar sem hugsunin er sú að beita fullum mætti ríkisvaldsins til þess að tryggja að borgararnir lúti hugmyndafræðilegum áherslum stjórnmálamannanna í daglegu lífi,“ sagði Snorri.
Kynjafræði sem skyldufag
Í ræðunni gagnrýndi hann sérstaklega hvernig kynjafræði sé orðin áberandi innan skólakerfisins.
Hann benti á að víða væri hægt að ljúka framhaldsskóla án þess að nemendur þurfi að taka einn einasta áfanga í Íslandssögu.
Þess í stað væri kynjafræði skylduáfangi í mörgum framhaldsskólum landsins en í þeim fræðum séu karlar settir í neikvætt samhengi og konur sýndar sem eilíf fórnarlömb.
„Í grunninn þetta klassíska: að konur séu eilíflega fórnarlömb og að karlar séu vafasamir upp til hópa,“ sagði hann.
Hann sakaði jafnréttisfræðslu um að „beina því til stráka“ að þeir eigi að víkja fyrir konum og að karlmennska þeirra sé „eitruð“, nema þeir „hugsi, tali og hagi sér nákvæmlega eins og kynjafræðingarnir mæla fyrir um.“
Segir innrætinguna byrja í leikskóla
Snorri gagnrýndi einnig að ný jafnréttisáætlun geri ráð fyrir að fræðslan nái til allra skólastiga – jafnvel leikskóla.
„Nú er stefnt að því í þessari jafnréttisáætlun að tryggja alveg örugglega svona jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Á öllum skólastigum, ekki bara í grunnskólum, heldur líka leikskólum. Þannig að innrætingin heldur áfram.“
Eigum að meta fólk eftir verðleikum, ekki vegna kyns
Í lok ræðu sinnar hvatti hann til nýrrar nálgunar í jafnréttismálum þar sem sjálfsábyrgð einstaklinga væri höfð að leiðarljósi fremur en ríkisíhlutun.
„Í stað fórnarlambsvæðingar, í stað þess að verja hér ómældu skattfé í að byggja upp nýjar og nýjar skýjaborgir jaðarsetningar og líkra hópa, ættum við að höfða til sjálfsábyrgðar einstaklinga og leyfa þannig samfélaginu, í guðanna bænum, að hefja að meta fólk – óháð kyni og eftir verðleikum,“ sagði hann.
Ekki eina gagnrýnin
Snorri birti jafnframt samantekt og persónulega skoðun sína á jafnréttisáætluninni á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter), þar sem hann sagði meðal annars:
„Ef einhver vonaðist til að metnaðarfyllsta ráðstöfun skattfjár í hvers konar woke hugarleikfimi hefði horfið af þingi með Vinstri grænum, eru líklega vonbrigði að heyra jafnréttismálaráðherra Viðreisnar staðfesta það hróðug í þingsal, að hún leggi nú fram ‘jafnréttisáætlun’ Vinstri grænna bókstaflega óbreytta.“
Í færslunni tíundaði hann fjölmargar aðgerðir úr áætluninni og lýsti þeim með kaldhæðni sem „pólitísku uppeldi“ og dæmum um „menningarnæmi“, „sjálfbær kynjuð skuldabréf“ og „opinbera innrætingu“ allt frá leikskólaaldri.
Meðal annars gagnrýndi hann að ráðherra Viðreisnar hygðist áfram beita ríkisvaldinu til að „jafna kynjahlut í íþróttaumfjöllun“, safna „kyngreindum gögnum í sjávarútvegi“ og halda áfram með jafnlaunavottun sem hann segir að rannsóknir sýni að hafi engin áhrif haft.
Færslan hefur þegar vakið viðbrögð og deilur á samfélagsmiðlum.
Ef einhver vonaðist til að metnaðarfyllsta ráðstöfun skattfjár í hvers konar woke hugarleikfimi hefði horfið af þingi með Vinstri grænum, eru líklega vonbrigði að heyra jafnréttismálaráðherra Viðreisnar staðfesta það hróðug í þingsal, að hún leggi nú fram „jafnréttisáætlun“… pic.twitter.com/i0vfLcyzuy
— Snorri Másson (@5norri) April 2, 2025