Þingmaður um sitt fyrsta Alþingi: „Ómögulegt að gera öllum til geðs – en maður verður að segja satt“

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins og nýliði á Alþingi, birti í gær kvöldi hugleiðingu á samfélagsmiðlum þar sem hann skoðar hvað hann lærði af sínu fyrsta þingi.

Hann segir þingstörfin hafa komið sér á óvart á ýmsa vegu, en ætli að fjalla nánar um það síðar.

Auglýsing

„Í bili vil ég segja: Ég þakka ykkur einlæglega fyrir góðan stuðning, kæru vinir, og hvatninguna í dagsins önn,“ skrifar hann.

Lífsregla úr þinginu: „Er þetta satt? Þá segja það!“

Snorri deilir einni meginreglu sem hann segist hafa lært í starfi þingmanns: að ómögulegt sé að gera öllum til geðs.

Því hafi hann tekið upp þann vana að horfa á texta eða hugsa setningu og spyrja sjálfan sig: „Er þetta satt?“ Ef svarið er já, þá eigi einfaldlega að segja hlutina, sama hverjum það kunni að þykja misboðið.

„Ég mæli með þessari meginreglu. Hún er hressandi og einfaldar lífið,“ segir hann.

Hnyttin skírskotun til Heimildarinnar og Miðflokksins

Í lok færslunnar birtir Snorri nýlega ljósmynd af sér á þingi, tekin af ljósmyndaranum Golla. Hann nefnir með kaldhæðni að Heimildin sé þegar farin að nota myndina til að myndskreyta greinar sínar um hann og Miðflokkinn, og bætir við að hann óski blaðinu góðs gengis með þær:

„Megi þær verða fleiri og lengri en nokkru sinni fyrr á næsta þingi!“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing