Mikil spenna skapaðist í kappræðusal Oxford Union þegar breski leikarinn og aðgerðasinninn Laurence Fox þóttist ætla að sýna skopmynd af Múhameð spámanni.
Atvikið átti sér stað í kappræðum um hvort Vesturlönd hefðu ástæðu til að vera tortryggin í garð íslams. Kappræðurnar fóru fram 17. júní en upptaka af þeim var ekki birt fyrr en í byrjun ágúst.
Fox og Tommy Robinson voru meðal þeirra sem töluðu með tillögunni. Arwa Elrayess, þáverandi forseti Oxford Union, og nokkrir múslimskir ræðumenn töluðu gegn henni.
Oxford Union er sjálfstætt kappræðufélag sem tengist háskólasamfélaginu í Oxford en er ekki formlegur hluti Oxford háskóla.
Sagðist ekki ætla að ritskoða sig
Fox hélt því fram að Vesturlönd ættu að standa fast á tjáningarfrelsinu gagnvart íslam. Í miðri ræðu sinni tilkynnti hann síðan að hann hygðist sýna salnum skopmynd af Múhameð.
Andköf heyrðust meðal áhorfenda og nokkrir fundarmenn hvöttu stjórnanda kappræðanna til að koma í veg fyrir að myndin yrði sýnd.
Ræðumenn gegn tillögunni bentu á að það eitt að Fox og Robinson hefðu verið boðnir í salinn sýndi að Oxford Union væri reiðubúið að verja tjáningarfrelsið. Þeir mótmæltu því þó jafnframt að myndin yrði sýnd.
Eftir umræður um fundarreglur fékk Fox heimild til að halda áfram.
„Í þeim anda mun ég ekki gefast upp. Ég sýni ykkur þetta sem Englendingur sem trúir á tjáningarfrelsi. Ég læt engan beygja mig,“ sagði Fox.
Þegar hann dró myndina loks upp úr umslagi kom í ljós að hún sýndi ekki Múhameð. Á henni var þess í stað merki franska skopmyndatímaritsins Charlie Hebdo.

Fox sagði viðbrögðin í salnum hafa sannað mál sitt. Allir viðstaddir hefðu fundið fyrir óttanum sem skapaðist við það eitt að halda að skopmynd af Múhameð yrði sýnd og óttanum sem fylgir því að móðga íslam.
My full speech at the @OxfordUnion debating whether the west is right to be suspicious of Islam.
I needed a security team to attend and we were spat at, bullied and heckled by a baying mob.
But I will not give up on free speech.
I will not submit. pic.twitter.com/fgC7Xr963d
— Laurence Fox (@LozzaFox) July 31, 2026
Sagði Robinson njóta verndar múslima
Önnur ummæli úr kappræðunum hafa einnig vakið athygli.
Oxford neminn Aisha Khan-Aziz kynnti Robinson með háðslegum hætti og benti honum á að hópur mótmælenda væri fyrir utan bygginguna.
Hún sagði að án verndar og örlætis palestínsks forseta félagsins, sem væri múslimi, og framkvæmdastjórnar sem væri að mestu skipuð fólki af suður asískum uppruna, væri Robinson „quite literally cooked“.
Orðalagið er erfitt í beinni þýðingu en gaf til kynna að án verndar félagsins gætu mótmælendurnir fyrir utan gengið frá honum.
WOW.
A student at the Oxford Union tells Tommy Robinson he is lucky they’ve put security on for him otherwise their Pro-Islam supporters outside would beat him to death
This is the Oxford Union, how far it has fallen as an institution when this is the sort of argument made pic.twitter.com/pMpdw4NatT
— Basil the Great (@BasilTheGreat) July 31, 2026
Sumir túlkuðu ummælin síðar sem hótun eða viðvörun um að Robinson ætti á hættu að ráðist yrði á hann af múslimum.
Robinson hefur sjálfur hafnað þeirri túlkun. Hann sagði Khan-Aziz hafa verið að grínast og að mótmælendurnir fyrir utan hefðu fyrst og fremst verið hvítir vinstrisinnaðir aðgerðasinnar en ekki múgur múslima.
Hann bað Khan-Aziz afsökunar á því að hafa ekki leiðrétt misskilninginn fyrr.
„Ég veit að þú meintir þetta ekki þannig og ég hefði átt að segja það frá fyrstu mínútu,“ sagði Robinson.
There is a glimpse of hope left if we find more honorable men like him.
Tommy Robinson 🇬🇧 on X: „I WAS NOT THREATENED – I APOLOGISE Please take a moment to watch this, and SHARE it. I have to be honest with all of you as well as myself. Aisha Khan said something very silly,…
— Soma (@cootiejuice) August 5, 2026
Hundruð lokuðu aðgangi að salnum
Mikil mótmæli fóru fram fyrir utan Oxford Union á meðan kappræðurnar stóðu yfir.
Um 500 grímuklæddir mótmælendur lokuðu inngöngum byggingarinnar og komu í veg fyrir að fjölmargir gestir, þar á meðal stjórnarmenn félagsins, kæmust inn.
Lögregla og öryggisverðir voru á svæðinu og héldu andstæðingum Robinson aðskildum frá stuðningsmönnum hans.
Aðeins um 200 manns eru taldir hafa komist inn í kappræðusalinn.