Þrír létust og þrír særðust þegar skotárás var gerð á íshokkíleik milli tveggja framhaldsskóla í Pawtucket í Rhode Island á sunnudagskvöld.
Árásin átti sér stað í Dennis M. Lynch Arena þar sem lið frá Coventry og Blackstone Valley skólunum mættust til leiks. Samkvæmt fréttamiðlum á svæðinu er árásarmaðurinn meðal hinna látnu og lögregla telur ekki að fleiri séu viðriðnir málið.
Faðir sagður hafa afvopnað árásarmann
Heimildir herma að árásarmaðurinn hafi verið vopnaður tveimur skotvopnum. Faðir sem var á staðnum er sagður hafa náð einu vopnanna af honum.
Vitni lýstu mikilli ringulreið þegar skothvellir heyrðust allt í einu inni í höllinni. Markvörður annars liðsins sagðist í fyrstu hafa haldið að blöðrur væru að springa.
„Það var popp, popp, popp. Ég hélt fyrst að þetta væru blöðrur, en svo hélt þetta bara áfram og þá áttaði ég mig á að þetta voru skot,“ sagði hann í viðtali. Hann og liðsfélagar hans hlupu í búningsklefann og læstu sig inni.
Talið tengjast heimilisofbeldi
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að atvikið tengist heimilisofbeldismáli sem hafi stigmagnast. Talið er að maðurinn hafi skotið eiginkonu sína til bana og sært tvö barna sinna áður en hann tók eigið líf.
Starfsmaður í nálægu apóteki sagði að fólk hefði hlaupið inn í verslunina í skelfingu og sagt frá að skothríð hefði átt sér stað í höllinni.
Yfirvöld segja enga hættu yfirvofandi
Lögregla í Pawtucket segir enga yfirvofandi hættu fyrir almenning en biðlar til fólks að halda sig fjarri svæðinu á meðan rannsókn stendur yfir.
Skólayfirvöld í Coventry greindu frá því að búið væri að telja alla nemendur úr hokkíliðinu sem voru á svæðinu og þeir væru óhultir.