Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi

Þrjú ungmenni, piltur og tvær stúlkur, létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt.

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu rétt í þessu.

Auglýsing

Tilkynning um slysið barst klukkan 0.19. Ungmennin voru öll í sömu bifreið, sem var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar hún hafnaði utan vegar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing